Ferðalangar í vandræðum víða um land vegna færðar Freyja Þórisdóttir skrifar 15. mars 2026 12:52 Björgunarsveitin Tálkni var meðal þeirra sem kölluð var út í nótt. Aðsend Björgunarsveitir á Vestfjörðum og Reykjavík voru stóran hluta nætur að aðstoða ferðalanga sem voru í vandræðum sökum slæmrar færðar.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem Slysavarnafélagið Landsbjörg sendi frá sér rétt í þessu. Þar segir einnig að rétt eftir klukkan eitt í nótt hafi Hjálparsveit skáta í Reykjavík verið send upp á Sandskeið til aðstoðar fjölda fólks sem lent hafði í vandræðum sökum skyggnis og færðar. Bílar stóðu flestir fastir frá Lækjarbotnum og austur fyrir Bláfjallaafleggjara. Mikil hálka var á veginum og um tíma þreifandi bylur. Einhverjir ökumenn lentu út af veginum við þessar aðstæður. Allt í allt voru farþegar í hátt í 20 ökutækjum aðstoðaðir, annaðhvort með því að flytja fólk í bæinn eða losa bíla og fylgja í bæinn. Aðgerðum þar lauk um hálf sex í morgun. Um svipað leyti var björgunarsveitin Tálkni á Tálknafirði boðuð út vegna bifreiðar á fjallveginum Hálfdán. Þar var ökumaður í vandræðum ásamt tveimur farþegum í bílnum. Fólkinu var komið í skjól í björgunarsveitarbílnum og flutt niður. Aðgerðum á Hálfdán lauk um hálf þrjú. Vegfarendur voru fastir víða um land vegna erfiðrar færðar í nótt.Vísir/Vilhelm Rétt fyrir klukkan fimm í morgun var svo björgunarsveitin Dýri á Þingeyri boðuð út vegna ferðalanga á Dynjandisheiði. Þar voru tveir í bílnum sem voru fluttir áleiðis til Ísafjarðar til með björgunarsveitinni, til móts við annan bíl. Þessari aðgerð var lokið rétt upp úr klukkan níu í morgun.
Björgunarsveitir Færð á vegum Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Skuldar ekkert Innlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Innlent Fleiri fréttir Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sjá meira