Hundruð manns í fjöldahjálparstöðvum fyrir norðan: „Það var bara snælduvitlaust veður“ Agnar Már Másson skrifar 15. mars 2026 23:07 „Það var bara snælduvitlaust veður,“ segir yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra. Á mynd má sjá bílaröð að Staðarskála úr norðurátt frá því síðdegis í dag, áður en lögreglan lokaði veginum. Vísir/Oddur Hundruð manns hafa leitað í fjöldahjálparstöðvar Rauða krossins á Norðvesturlandi í kvöld. Veðurviðvararnir eru fallnar úr gildi en Holtavörðuheiðin stendur enn lokuð. Ekki er ljóst hvenær hún opnar að nýju.
Mikil norðaustanhríð hefur skekið norðausturhornið í dag og lögreglan lokaði í dag 120 kílómetra vegkafla á þjóðveginum sem nær meðal annars yfir Holtavörðuheiði. Ólíklegt þykir að vegurinn opni aftur í kvöld. Lögreglan á Norðurlandi vestra birti Facebook-færslu í dag þar sem hún bað „ALLA“ um að halda sig heima Lögreglan hefur lokað þessum vegkafla.Já.is „Það var bara snælduvitlaust veður,“ segir Pétur Björnsson yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra. „Bæði á Holtavörðuheiði og norðan við Hvammstangaafleggjara.“ Rauði krossinn hefur opnað tvær fjöldahjálparstöðvar fyrir þá sem ekki komast leiðar sinnar. Önnur stöðin er í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi og hin í Reykjaskjóa í Hrútafirði. Pétur segir að um 200 manns hafi leitað skjóls í íþróttahúsinu á Blönduósi. Hann segir að ekki liggi fyrir nákvæmur fjöldi þeirra sem hafa leitað í Reykjaskóla í Hrútafirði, en klukkan 21 í kvöld höfðu um 70 manns leitað skjóls í skólanum að því er fram kemur í Facebook-færslu Rauða krossins. Í færslu Rauða krossins segir að sjálfboðaliðar frá Rauða krossinum sjái um stöðvarnar í góðri samvinnu við heimafólk. Gular veðurviðvaranir sem hafa verið í gildi á norðvesturhorni landsins eiga að féllu úr gildi klukkan 23 samkvæmt vef Veðurstofunnar en heiðin er enn lokuð samkvæmt vef Vegagerðarinnar. Pétur hjá lögreglunni segir þó að enn sé brjálað veður á Holtavörðuheiðinni og við Hvammstangaafleggjara. Ekki liggi fyrir hvenær heiðin verði opnuð á ný en Vegagerðin tekur þær ákvarðanir, að sögn lögregluþjónsins. Fjöldi fólks hefur lent í umferðaróhappi í dag og björgunarsveitir hafa haft í nógu að snúast.
Veður Húnaþing vestra Færð á vegum Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira