Súperstjarna tískuheimsins klæddi Laufeyju Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 16. mars 2026 13:55 Laufey var glæsileg í hönnun Emily Bode um helgina. Vísir/Viktor Freyr Laufey Lín er ekki bara ein stærsta tónlistarstjarna heims heldur hefur hún sömuleiðis haslað sér völl sem mikil tískudrottning sem veitir milljónum innblástur í klæðaburði. Á tónleikunum um helgina skipti hún fjórum sinnum um lúkk sem var hvert öðru glæsilegra og allt sérhannað á hana fyrir tilefnið.
Ballerínuskór, rómantík, þriðji áratugurinn, höfuðklútar, glimmer og glans, elegans, tjull og fleira í þeim dúr einkennir stíl Laufeyjar Línar en hann hefur verið í stöðugri þróun frá því hún skaust lengst upp á stjörnuhimininn. View this post on Instagram A post shared by laufey (@laufey) Laufey hefur sem dæmi síðastliðin tvö ár verið gestur á Met Gala hátíðinni í New York sem er jafnan þekkt sem eftirsóknarverðasta tískuhátíð ársins þar sem þau allra flottustu í bransanum bjóða stjörnum að klæðast hátískuflíkum á söfnunarkvöldi fyrir Metropolitan safnið. Á þessu tónleikaferðalagi vinnur Laufey með súperstjörnu í tískuheiminum sem þykir gríðarlega hipp og kúl hjá tískugyðjum í Bandaríkjunum. Sú heitir Emily Adams Bode Aujla og rekur tískuhúsið Bode. View this post on Instagram A post shared by laufey (@laufey) Emily er fatahönnuður búsett í New York og rekur tískuhúsið með eiginmanni sínum Aaroni en Vogue og fleiri tískurisar hafa líst því sem einhverju flottasta fatamerki samtímans. Hún sækir innblástur meðal annars aftur til 1920, flapper kjólar og kögur í gæðaefnum í bland við stílhreinar en ofurkúl flíkur. Hægt er að versla af henni á netinu og er til dæmis hægt að festa kaup á mjög elegant kjól sem minnir á gatsby tímana á tæpar 340 þúsund krónur. Laufey skiptir fjórum sinnum um föt yfir tónleikana og öll eru þau sérsniðin að henni af Emily. Hún á þau í ýmsum litum og breytir þannig til á milli tónleika. Þær virðast algjörlega gerðar fyrir samstarf því fötin skína einstaklega skært á sviðinu og eru algjörlega í anda Laufeyjar tískudrottningar. View this post on Instagram A post shared by laufey (@laufey) Það verður einstaklega spennandi að sjá hverju hún klæðist á Met Gala fyrsta mánudag í maí og kæmi ekki á óvart að hún rataði á lista yfir best klæddu stórstjörnurnar þar.
Laufey Lín Tíska og hönnun Mest lesið Hver þarf pizzu þegar Laufey er komin á sviðið? Gagnrýni Þau flottustu og mest púkó á Óskarnum Tíska og hönnun One Battle After Another bar sigur úr býtum Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Bombur í Hörpu Lífið Íslendingur fagnaði Óskarsverðlaunum Lífið Ekki lengur „give me five-frambjóðandi“ Lífið Súperstjarna tískuheimsins klæddi Laufeyju Tíska og hönnun Hver er Alex Jones? Maðurinn sem vopnvæddi óttann og græddi milljarða Lífið Bæði fyrsta konan og svarta manneskjan til að vinna Bíó og sjónvarp Elín Hall í sjóðheitri íslenskri hönnun Tíska og hönnun Fleiri fréttir Súperstjarna tískuheimsins klæddi Laufeyju Elín Hall í sjóðheitri íslenskri hönnun Þau flottustu og mest púkó á Óskarnum Hvetur karlmenn til að leggja sig meira fram Heitasti keramiker landsins í fíling Chappell Roan elskar Fischersund Tískan vopnið í keppni gegn krabbameini Slakur með 62 milljón króna hálsmen Björk glæsileg í indverskri hönnun Segir nei takk við jakkafatapésana Best klæddu pör sögunnar Björn skellti sér strax í sokkana Afhjúpa þemað fyrir tískuveislu ársins Dorrit ánægð með demantsklædda Kylie Furðulegar þýðingar netverslunar: „Smjaðandi silúett“ og „skjaldbökunnarbrún rammi“ Gullin regla að sýna ekki allt hold í einu Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Sjá meira