Ísland í öðru sæti yfir hamingjusömustu þjóðir heims Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 19. mars 2026 10:33 Íslendingar færðust upp um eitt sæti milli ára. Vísir/Vilhelm Ísland er í öðru sæti yfir hamingjusömustu þjóðir heims og fer því upp um eitt sæti á milli ára. Þó eru íbúar á Vesturlöndunum óhamingjusamari í dag heldur en fyrir fimmtán árum. Finnar tróna á toppnum yfir hamingjusömustu þjóð heims í níunda árið í röð og á eftir Íslendingum eru Danir og Kosta Ríka í því fjórða. Svíar og Norðmenn eru þá ekki langt á eftir hinum Norðurlöndunum, í fimmta og sjötta sæti. Þrátt fyrir að Norðurlöndin séu efst á lista eru íbúar á Vesturlöndunum minna hamingjusamir í dag heldur en árin 2005 til 2010. Oxford-háskólinn fer með rannsóknina og spyr íbúa í 147 löndum, með aðstoð Gallup, um að staðsetja sig sjálf á skala frá núll upp í tíu. Litið er til sex þátta, landsframleiðslu á mann, lífslíka, örlætis og upplifunar íbúa á frelsi og spillingu. Frá núll upp í tíu stigum mældust Íslendingar með 7,540 stig en Finnarnir 7,764 stig. Neðst á listanum er Afganistan sem fær 1,446 og þar á undan Síerra Leóne sem fær 3,251. Skýrslan í heild sinni er hér. Ungmennin óhamingjusamari „Það er sláandi lækkun á vellíðan ungs fólks,“ segir John F. Helliwell, prófessor og stofnandi og ritstjóri Alþjóðahamingjuskýrslunnar, í samtali við CNN. „Ein ástæðan, sérstaklega í Bandaríkjunum, er umfang og eðli notkunar samfélagsmiðla.“ Sérstaklega megi nefna vaxandi óhamingju meðal ungmenna í Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu og Nýja-Sjálandi. Rannsakendur telja að mikil notkun ungmenna á samfélagsmiðlum hafi áhrif. Þrátt fyrir það noti ungmenni í Suður-Ameríku einnig samfélagsmiðla mikið en það virðist ekki hafa sömu áhrif og í áðurnefndum löndum. Helliwell telur að það fari eftir hvernig þau noti samfélagsmiðlana. „Þú vilt ekki vera alveg aftengdur og þú vilt ekki vera of tengdur,“ segir hann. „Varðandi Internetið, of mikið af því getur verið slæmt.“ Hamingjusömustu þjóðirnar: 1. Finnland 2. Ísland 3. Danmörk 4. Kosta Ríka 5. Svíþjóð 6. Noregur 7. Holland 8. Ísrael 9. Lúxemborg 10. Sviss Geðheilbrigði Danmörk Finnland Kosta Ríka Noregur Svíþjóð Vísindi Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ Sjá meira
Finnar tróna á toppnum yfir hamingjusömustu þjóð heims í níunda árið í röð og á eftir Íslendingum eru Danir og Kosta Ríka í því fjórða. Svíar og Norðmenn eru þá ekki langt á eftir hinum Norðurlöndunum, í fimmta og sjötta sæti. Þrátt fyrir að Norðurlöndin séu efst á lista eru íbúar á Vesturlöndunum minna hamingjusamir í dag heldur en árin 2005 til 2010. Oxford-háskólinn fer með rannsóknina og spyr íbúa í 147 löndum, með aðstoð Gallup, um að staðsetja sig sjálf á skala frá núll upp í tíu. Litið er til sex þátta, landsframleiðslu á mann, lífslíka, örlætis og upplifunar íbúa á frelsi og spillingu. Frá núll upp í tíu stigum mældust Íslendingar með 7,540 stig en Finnarnir 7,764 stig. Neðst á listanum er Afganistan sem fær 1,446 og þar á undan Síerra Leóne sem fær 3,251. Skýrslan í heild sinni er hér. Ungmennin óhamingjusamari „Það er sláandi lækkun á vellíðan ungs fólks,“ segir John F. Helliwell, prófessor og stofnandi og ritstjóri Alþjóðahamingjuskýrslunnar, í samtali við CNN. „Ein ástæðan, sérstaklega í Bandaríkjunum, er umfang og eðli notkunar samfélagsmiðla.“ Sérstaklega megi nefna vaxandi óhamingju meðal ungmenna í Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu og Nýja-Sjálandi. Rannsakendur telja að mikil notkun ungmenna á samfélagsmiðlum hafi áhrif. Þrátt fyrir það noti ungmenni í Suður-Ameríku einnig samfélagsmiðla mikið en það virðist ekki hafa sömu áhrif og í áðurnefndum löndum. Helliwell telur að það fari eftir hvernig þau noti samfélagsmiðlana. „Þú vilt ekki vera alveg aftengdur og þú vilt ekki vera of tengdur,“ segir hann. „Varðandi Internetið, of mikið af því getur verið slæmt.“ Hamingjusömustu þjóðirnar: 1. Finnland 2. Ísland 3. Danmörk 4. Kosta Ríka 5. Svíþjóð 6. Noregur 7. Holland 8. Ísrael 9. Lúxemborg 10. Sviss
Hamingjusömustu þjóðirnar: 1. Finnland 2. Ísland 3. Danmörk 4. Kosta Ríka 5. Svíþjóð 6. Noregur 7. Holland 8. Ísrael 9. Lúxemborg 10. Sviss
Geðheilbrigði Danmörk Finnland Kosta Ríka Noregur Svíþjóð Vísindi Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ Sjá meira