Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Árni Sæberg skrifar 18. mars 2026 15:55 Verjandi Þórarins hefur þegar áfrýjað dómnum til Landsréttar. Vísir Þórarinn Arnar Sævarsson, einn eigenda fasteignasölunnar RE/MAX hefur verið dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir markaðsmisnotkun. Þá þarf félagið IREF ehf. að greiða fimmtíu milljóna króna sekt en Þórarinn á helmingshlut í félaginu.
Almar Möller verjandi Þórarins segir dóminn mjög mikil vonbrigði og honum hafi þegar verið áfrýjað til Landsréttar. Varðaði fjölda viðskipta með bréf í Kviku Dómurinn hefur ekki verið birtur og því liggja forsendur hans ekki fyrir að svo stöddu en í ákæru á hendur Þórarni kom fram að markaðsmisnotkunin hafi farið fram árið 2020 á um tveggja mánaða tímabili og að hann hafi í 71 skipti lagt fram viðskiptafyrirmæli um kaup á hlutabréfum í Kviku banka hf. sem voru líkleg til að gefa ranga eða villandi mynd af eftirspurn og verði hlutabréfanna. Þórarinn var á þeim tíma einn stærsti einkafjárfestirinn í Kviku ásamt viðskiptafélaga sínum í gegnum IREF. Viðskiptin hefðu aldrei hækkað gengið um meira en 1,5 prósent Þórarinn taldi fullyrðingar ákæruvaldsins um sekt hans á sandi byggðar, líkt og Vísir fjallaði um á dögunum. Í greinargerð hans kom meðal annars fram að viðskipti hans með bréf í Kviku hafi numið 0,14 prósentum af heildarviðskiptum á ákærutímabilinu, þróun gengis félagsins hefði verið í takt við þróun gengis Arion banka á tímabilinu og hann hefði ekki reynt að hafa áhrif á dagslokagengi Kviku. Viðskipti hans með bréf í félaginu hefðu aldrei hækkað gengið um meira en 1,5 prósent, sem væri langt undir öllum viðmiðunarmörkum. Fréttin hefur verið uppfærð.
Dómsmál Tengdar fréttir Eigandi Remax ákærður fyrir markaðsmisnotkun Héraðssaksóknari hefur ákært Þórarinn Arnar Sævarsson, einn eigenda fasteignasölunnar Remax fyrir markaðsmisnotkun. Héraðssaksóknari ákærir einnig félagið IREF en Þórarinn Arnar var prókúruhafi í félaginu. 21. október 2025 20:01 „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Þórarinn Arnar Sævarsson, einn eigenda fasteignasölunnar Remax, sem sætir ákæru fyrir markaðsmisnotkun telur fullyrðingar ákæruvaldsins um sekt hans á sandi byggðar. Í greinargerð hans kemur meðal annars fram að viðskipti hans með bréf í Kviku hafi numið 0,14 prósentum af heildarviðskiptum á ákærutímabilinu, þróun gengis félagsins hafi verið í takt við þróun gengis Arion banka á tímabilinu og hann hafi ekki reynt að hafa áhrif á dagslokagengi Kviku. Viðskipti hans með bréf í félaginu hafi aldrei hækkað gengið um meira en 1,5 prósent, sem er langt undir öllum viðmiðunarmörkum. 6. febrúar 2026 06:47 Þórarinn Arnar keypti glæsihús Tona á Arnarnesi Þórarinn Arnar Sævarsson, einn eigenda fasteignasölunnar Re/Max, hefur fest kaup á glæsihöll Antons Kristins Þórarinssonar, sem kallaður er Toni, við Haukanes í Garðabæ. Kaupverðið nam 484 milljónum króna. 14. október 2025 12:46 Mest lesið Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Viðskipti innlent Hefja rannsókn á Ryanair Viðskipti erlent Vélmenni ráðið til starfa og þú rekinn Atvinnulíf Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Viðskipti innlent Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Viðskipti innlent Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Samstarf Wise valið samstarfsaðili ársins hjá Companial Samstarf Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Sjá meira
Eigandi Remax ákærður fyrir markaðsmisnotkun Héraðssaksóknari hefur ákært Þórarinn Arnar Sævarsson, einn eigenda fasteignasölunnar Remax fyrir markaðsmisnotkun. Héraðssaksóknari ákærir einnig félagið IREF en Þórarinn Arnar var prókúruhafi í félaginu. 21. október 2025 20:01
„Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Þórarinn Arnar Sævarsson, einn eigenda fasteignasölunnar Remax, sem sætir ákæru fyrir markaðsmisnotkun telur fullyrðingar ákæruvaldsins um sekt hans á sandi byggðar. Í greinargerð hans kemur meðal annars fram að viðskipti hans með bréf í Kviku hafi numið 0,14 prósentum af heildarviðskiptum á ákærutímabilinu, þróun gengis félagsins hafi verið í takt við þróun gengis Arion banka á tímabilinu og hann hafi ekki reynt að hafa áhrif á dagslokagengi Kviku. Viðskipti hans með bréf í félaginu hafi aldrei hækkað gengið um meira en 1,5 prósent, sem er langt undir öllum viðmiðunarmörkum. 6. febrúar 2026 06:47
Þórarinn Arnar keypti glæsihús Tona á Arnarnesi Þórarinn Arnar Sævarsson, einn eigenda fasteignasölunnar Re/Max, hefur fest kaup á glæsihöll Antons Kristins Þórarinssonar, sem kallaður er Toni, við Haukanes í Garðabæ. Kaupverðið nam 484 milljónum króna. 14. október 2025 12:46