Hafi þegið pening fyrir að giftast kærustu Quang Le Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 18. mars 2026 23:48 Systurnar segja Davíð hafa verið fullmeðvitaðan um hvað stæði til þegar hann fór til Víetnam að giftast þarlenskri konu að tillögu veitingamannsins Quang Le. Mynd frá Hanoí höfuðborg landsins Getty Systur Davíðs Viðarssonar fullyrða að hann hafi ekki verið blekktur til að gifta sig af veitingamanninum Quang Le heldur hafi hann samið um að þiggja af honum eina og hálfa milljón króna fyrir að giftast kærustu Quang Le í Víetnam svo hún hafi getað flust til Íslands. Davíð neitar þessu og segir viðbúið að þær tækju sig saman gegn sér, í ljósi sögu ósættis innan fjölskyldunnar. Hann fagnar því í dag að börn Quang Le séu ekki lengur skráð sín eigin.
Davíð Viðarsson varð landsþekktur fyrir tveimur árum síðan þegar hann lýsti viðskiptum sínum af veitingamanninum Quang Le. Fréttir af því bárust að sá síðarnefndi hefði tekið nafn Davíðs upp eftir að hafa tekið frá honum eiginkonu hans og eignast með henni tvö börn sem skráð voru á Davíð. Í viðtali við fréttastofu opnaði hann sig um málið, kvaðst hafa verið blekktur af Quang Le, sem hann hafi talið til vina, til að giftast víetnamskri konu. Slegið hafi verið upp brúðkaupsveislu með fjölskyldu konunnar ytra en við komuna til Íslands var honum sagt að hann kæmi ekki til með að búa með nýrri eiginkonu sinni, heldur Quang Le. „Þetta átti að vera alvöru hjónaband en varð það heldur betur ekki,“ sagði hann á sínum tíma en systur hans tvær, Dagmar Vigdís Viðarsdóttir og Hulda Valdís Önundardóttir, segja í samtali við Vísi að þetta standist ekki skoðun. Einni systurinni boðið sama samkomulag Nánar tiltekið lýsa þær því báðar að hann hafi verið meðvitaður um hvernig málum yrði háttað og hafi þegið greiðslu upp á eina og hálfa milljón króna fyrir að aðstoða Quang Le við að útvega kærustu sinni dvalarleyfi á Íslandi. Ekki er ljóst hvort peningarnir hafi nokkurn tímann skilað sér en fyrir liggur að Davíð telur farir sínar ekki sléttar af samskiptum sínum við Quang Le. Dagmar Vigdís lýsir því einnig að önnur systir þeirra og móðir hafi verið með í ráðum og reifað svipað samkomulag við sig: nefnilega að hún þægi tvær milljónir króna fyrir að fara utan og giftast víetnömskum manni. Sjá einnig: Rekstur Davíðs Viðarssonar: Áralöng saga gruggugrar starfsemi Önnur systranna segir Davíð hafa borið áætlanir sínar undir sig áður en hann hélt út til brúðkaupsins. Honum hafi verið lofuð fyrrnefnd peningaupphæð og sagði að lagt hefði verið upp með að „hjónabandið“ myndi vara í fyrirfram ákveðinn tíma til að hringja ekki viðvörunarbjöllum hjá yfirvöldum hér á landi. Hún kveðst hafa mótmælt þessum áformum en að hún hefði talað fyrir daufum eyrum. Ekki kippt sér upp við meðlag eða arf Hulda Valdís Önundardóttir systir Davíðs birti færslu á Facebook-hópnum Mæðratips sem telur tæplega 40 þúsund meðlimi. Þar rakti hún söguna eins og hún skilur hana en færslan hefur vakið mikla athygli. Hún rakti söguna svo í samtali við blaðamann. Dagmar Vigdís Viðarsdóttir, önnur systir Davíðs, hefur sömu sögu að segja og Hulda. Báðar lýsa þær því að árið 2012 hafi Hulda við uppflettingu á Íslendingabók rekið augun í að Davíð væri skráður faðir tveggja barna; barna Quang Le. Þá hafi Dagmar Vigdís borið það undir bróður þeirra eftir að hafa rætt við Huldu Vigdísi. Davíð hafi gert lítið úr málinu og ekki kippt sér upp við að „eiginkona“ sín gæti lögum samkvæmt farið fram á meðlag eða að börnin tvö kæmu til með að erfa hann. Saga stirðra samskipta Davíð Viðarsson segir fullyrðingar systra sinna tilhæfulausar en að þær komi sér þó ekki á óvart í ljósi sögu stormasamrar sögu samskipta fjölskyldunnar. Dagmar Vigdís og Hulda Valdís ólust upp í fóstri í öðrum landshluta. Hann segist hafa gift sig í einlægri trú um að hann væri að eignast eiginkonu. Það hafi ekki hvarflað að honum að hann væri að útvega henni dvalarleyfi og hann tekur fyrir það að hafa þegið fé fyrir. Davíð segist hins vegar hafa loksins fengið það í gegn nýlega að börn Quang Le yrðu ekki lengur skráð sín.
Mál Quangs Le (Davíðs Viðarssonar) Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Sjá meira