Þegar kvikmyndagerðar- og tónlistarfólk kemur saman gerast ótrúlegir hlutir Boði Logason skrifar 19. mars 2026 12:34 „Ég hvet íslenskt tónlistarfólk til að halda áfram að gera vídeó," sagði Erlendur Sveinsson leikstjóri þegar hann tók við hlustendaverðlaununum fyrir myndband ársins. Myndband ársins 2026 að mati hlustenda Bylgjunnar og FM957 er við lagið Vopn með Birni og Aron Can í leikstjórn Erlendar Sveinssonar. Erlendur tók við verðlaununum og sagði ótrúlega hluti gerast þegar kvikmyndagerðarfólk og tónlistarfólk kæmi saman. Tónlistarmyndbönd eigi nú ákveðna endurkomu. „
Mér finnst eins og þau séu að koma til baka. Ég hvet íslenskt tónlistarfólk til að halda áfram að gera vídeó og ykkur hlustendur til að halda áfram að horfa á góð tónlistarmyndbönd því þegar kvikmyndagerðarfólk og tónlistarfólk koma saman geta ótrúlegir hlutir gerst.“ Klippa: Mynband ársins 2026 að mati hlustenda Hlustendaverðlaunin 2026 fóru fram með með þeim hætti í ár að starfsfólk Bylgjunnar og FM957 komu sigurvegurum á óvart með heimsókn og stuttum þáttum í kringum það. Tónlistarmennirnir Aron Can og Birnir við tökur. Þetta eru fyrstu Hlustendaverðlaun Erlendar en annars er hann margverðlaunaður kvikmyndagerðarmaður með MFA-gráðu í leikstjórn frá Columbia-háskóla. Á Imdb.com segir að stuttmyndir hans hafa verið sýndar á fjölda alþjóðlega viðurkenndra kvikmyndahátíða, svo sem Aspen Shortsfest, Palm Springs Shortsfest og Odense International Film Festival. Erlendur er Fulbright-styrkþegi, fyrrverandi þátttakandi í Berlinale Talent Campus, hefur tvisvar verið valinn „Vimeo Staff Pick“ og hlaut Vimeo Staff Pick-verðlaunin á Aspen Shortsfest árið 2019. Erlendur hefur meðal annars leikstýrt tónlistarmyndböndum hljómsveita eins og Of Monsters and Men. Þessi voru tilnefnd: Auk Vopns voru eftirfarandi tilnefnd til myndbands ársins: Gef þér Allt með Patrik ft. Luigi í leikstjórn Orra Guðmundssonar, Iceguys 4 life með Iceguys í leikstjórn Allan Sigurðssonar, Hennesar Þórs Arasonar og Hannesar Þórs Halldórssonar, Við eldana með Stuðlabandinu í leikstjórn Ásgeirs Helga Þrastarsonar og Fannars Freys Magnússonar, Lungu með Valdimar í leikstjórn Óskars Kristins Vignissonar, Lífstíll með Flóna og Birni í leikstjórn Arons Mola og Konráðs Bjarts, Meira Frelsi með Háska ft Luigi í leikstjórn Rúnars Inga Guðmundssonar og Odds Klöts Ólafssonar og Þrek og Tár með Creature of habit og Ómari Guðjóns í leikstjórn Gests Sveinssonar. Í ár eru veitt verðlaun í sjö flokkum og hlustendur ákveða hverjir sigra í hverjum flokki. Kosning fór fram hér á Vísi snemma í mars.
Hlustendaverðlaunin FM957 Bylgjan Sýn Tónlist Tengdar fréttir Herra Hnetusmjör er söngvari ársins Hlustendaverðlaunin 2026 fara fram með óhefðbundnu móti í ár þar sem starfsfólk Bylgjunnar og FM957 koma sigurvegurum á óvart með heimsókn og stuttum þáttum í kringum það. 17. mars 2026 18:01 Mest lesið Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning RJ Mitte er látinn Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Lífið Bombur á Barokki á klúbbnum Lífið „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist Fleiri fréttir „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Sjá meira
Herra Hnetusmjör er söngvari ársins Hlustendaverðlaunin 2026 fara fram með óhefðbundnu móti í ár þar sem starfsfólk Bylgjunnar og FM957 koma sigurvegurum á óvart með heimsókn og stuttum þáttum í kringum það. 17. mars 2026 18:01