37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Valur Páll Eiríksson skrifar 20. mars 2026 08:00 Gylfi Þór Sigurðsson segir stórmótin með landsliðinu hafa verið með því skemmtilegra sem hann hafi gert. Hann stefnir á EM 2028. Vísir/Samsett/Vilhelm/Sigurjón Gylfi Þór Sigurðsson í gær var valinn aftur í landsliðið eftir nokkurra missera bið. Hann fagnar valinu mjög og er stórhuga. Hann vill fara með liðinu á EM 2028.
Gylfi Þór hefur ekki leikið fyrir A-landsliðið síðan í október 2024, ef leikur úrvalsliðs Bestu deildarinnar við Mexíkó á dögunum er undantalinn. Hann hefur því beðið í um 18 mánuði eftir sæti í hópnum og tók símtalinu frá Arnari Gunnlaugssyni fagnandi. Klippa: Gylfi ræðir landsliðið, stöðu Víkinga og möguleika á EM „Mjög ánægður og gríðalega sáttur. Ég bíð spenntur eftir því að fara til Kanada. Það eru tveir leikir fram undan. Ég er mjög ánægður og hlakka mikið til,“ segir Gylfi. Samtalið við Arnar Gunnlaugsson hafi verið stutt og einfalt. „Langar þig að koma?“ hafi verið spurning Arnars og tilsvarið borðleggjandi. „Það var þannig séð stutt. Auðvitað er ég alltaf klár í það. Við vorum búnir að ræða saman, bæði í Mexíkó og fyrir það verkefni, og það var bara jákvætt og gott samtal,“ segir Gylfi sem fékk aðeins að kynnast nýjum landsliðsþjálfara í nýliðnu verkefni Bestu deildar leikmanna í Mexíkó. „Auðvitað var ég þessa tíu daga í Mexíkó svo ég veit nokkurn veginn hvernig fundirnir, leikskipulagið og allt það gengur fyrir sig hjá nýjum þjálfara. Fyrir utan það verður þetta ekkert öðruvísi, held ég,“ segir Gylfi. Passar upp á drengina Hafandi ekki leikið með liðinu um hríð og takandi tillit til þeirra kynslóðaskipta sem hafa átt sér stað gerir Gylfi ráð fyrir breyttu hlutverki. „Örugglega er ég eldri leikmaðurinn í hópnum. Ég er örugglega með meiri reynslu en aðrir þó það séu núna ungir leikmenn sem eru að spila á mjög háu stigi og eru búnir að gera í töluverðan tíma. Ætli maður verði ekki aðeins að passa upp á strákana,“ segir Gylfi léttur. Aftur á EM Gylfi er ekki í hópnum til þáttökunnar einnar. Hann vill festa sæti sitt í hópnum og þrátt fyrir að verða 37 ára síðar á þessu ári setur hann stefnuna á EM 2028. „Ég held það sé eðlilegt sem leikmaður sem hefur metnað og löngun að spila fyrir landið sitt held ég að maður horfi alltaf inn í framtíðina. Það er skemmtilegur æfingaleikur í Japan í maí og svo Þjóðadeildin og möguleiki á að komast á stórmót. Það er eitthvað sem leikmaður, sem maður horfir alltaf á,“ „Mín upplifun að fara á stórmót er eitthvað það skemmtilegasta sem ég hef gert á mínum ferli. Að eiga möguleikann á því að gera það aftur er það sem heldur manni gangandi,“ segir Gylfi. Töluvert fleira kemur fram í viðtalinu sem má sjá í heild sinni í spilaranum.
Landslið karla í fótbolta EM 2028 í fótbolta Besta deild karla Víkingur Reykjavík Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira