Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. nóvember 2026 11:32 Bradley Lowery lést úr krabbameini aðeins sjö ára gamall en hann var mikill fótboltaáhugamaður og stuðningsmaður Sunderland. Vísir/AFP Fjórtán ára drengur hefur gefið sig fram við lögregluna í West Midlands eftir að myndband sem birt var á samfélagsmiðlum virtist sýna stuðningsmann hæðast að Sunderland með mynd af Bradley Lowery í leik í ensku úrvalsdeildinni á laugardag.
Bradley, sem var stuðningsmaður Sunderland, lést sex ára gamall árið 2017 úr sjaldgæfri tegund krabbameins í börnum. Coventry greindi frá því á sunnudag að félagið væri að rannsaka myndbandið, en móðir Bradleys, Gemma, sendi frá sér eigin yfirlýsingu í gegnum Bradley Lowery Foundation, sjóð sem safnar fé og vekur athygli til að hjálpa og styðja börn með krabbamein. Boy hands himself in after Bradley Lowery taunt https://t.co/njLMppZS5K— BBC Midlands (@bbcmtd) November 1, 2026 Lögreglan í West Midlands hefur staðfest að rannsókn sé hafin. „Okkur er kunnugt um myndband sem gengur á samfélagsmiðlum og sýnir atvik á leik Coventry City og Sunderland í ensku úrvalsdeildinni,“ sagði í yfirlýsingu lögreglunnar. „Ítarleg rannsókn er hafin og 14 ára drengur hefur síðan gefið sig fram og verður rætt við hann þegar fram líða stundir. Við skiljum þá vanlíðan og reiði sem þetta myndband hefur valdið í samfélaginu og hjá fjölskyldu þolandans, og lögreglumenn okkar halda þeim upplýstum um framgang rannsóknarinnar og vinna náið með báðum knattspyrnufélögunum.“ Gemma Lowery sagði í yfirlýsingu sinni að „fallegi drengurinn“ hennar „ætti skilið að hans væri minnst með ást, ekki hatri. Sem móður Bradleys er þetta hjartaskerandi, sérstaklega þar sem þetta er ein af uppáhaldsmyndunum mínum af honum. Sjáið bara þetta bros,“ skrifaði hún en bætti við: „Ég vona að félagið grípi til viðeigandi aðgerða og að fjölskylda unga drengsins hjálpi honum að skilja hversu særandi gjörðir hans voru.“ Lowery bætti við að hún vildi ekki að „hatri yrði beint“ að stuðningsmanninum en vonaðist til þess að „félagið gripi til viðeigandi aðgerða“.
Enski boltinn Sunderland AFC Coventry City FC Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Fleiri fréttir Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákons grét eftir leik Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Dagskráin í dag: Bónus-deild kvenna og umferðinni lýkur í Newcastle Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sjá meira