„Verðum að ná sigri í þessu verkefni“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. mars 2026 22:07 Orri Freyr Þorkelsson vill ólmur vinna leikinn gegn Svíþjóð á laugardaginn kemur. vísir/anton Orri Freyr Þorkelsson skoraði sex mörk þegar Ísland laut í lægra haldi fyrir Svíþjóð, 33-35, í fyrri vináttulandsleik þjóðanna af tveimur. Hann naut þess að spila á Íslandi en var svekktur með tapið.
Það er ekki á hverjum degi sem íslenska karlalandsliðið í handbolta spilar vináttuleiki hér á landi. Kjaftfullt var að Hlíðarenda í kvöld. „Mér finnst það hrikalega gaman. Þetta er ekki Höllin og það er mjög gaman að spila þar en mér fannst geggjað að koma hingað og spila hérna. Þetta minnti kannski smá á þegar ég spilaði síðast á Íslandi, þegar við vorum að spila í úrslitakeppni,“ sagði Orri við Vísi eftir leikinn í kvöld. „Ég held að það sé svolítið skemmtilegt fyrir okkur strákana að upplifa að spila í fullu húsi sem er ekki Laugardalshöllin. Það er aðeins öðruvísi og mér fannst það hrikalega skemmtilegt.“ Mörkunum rigndi inn í fyrri hálfleik þar sem bæði lið skoruðu nítján mörk. „Við vorum að fá of mikið af mörkum á okkur. Mér fannst við vera svona full seinir í gang og við hefðum getað verið betri varnarlega. Þeir voru kannski að skora full mikið af auðveldum mörkum í fyrri hálfleik. Svo varð þetta aðeins þéttara og í seinni og ekki eins mörg mörk,“ sagði Orri. Íslenska liðið skoraði 33 mörk í leiknum í kvöld þrátt fyrir góða frammistöðu sænsku markvarðanna, sérstaklega Mikaels Appelgren. „Mér fannst við heilt yfir góðir sóknarlega og kannski smá bras á einhverjum tímapunktum í seinni hálfleik. En eins og í fyrri fannst mér flæðið gott. Við fengum mörg mismunandi mörk og okkur gekk vel að skora. Ég veit ekki hvað Appelgren varði mikið en hann leit allavega út fyrir að verja svolítið í seinni hálfleiknum,“ sagði Orri. En hverju á hann von í seinni leik Íslands og Svíþjóðar í Kaplakrika á laugardaginn? „Bara því sama. Við mætum bara aftur og ég hugsa að þetta verði bara nokkuð svipaður leikur. Ég er ósáttur með að við töpuðum þessum leik. Við eigum að mæta á laugardaginn og sækja sigur. Það er mikilvægt. Það ætti að gefa okkur mikið,“ sagði Orri. „Við verðum að ná sigri í þessu verkefni. En ég hugsa að þetta verði bara nokkurn veginn eins. Það verður bara gaman að mæta í Krikann og spila þar. Það kemur vonandi fullt af fólki eins og í dag.“
Landslið karla í handbolta Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira