„Vörnin var ekki nægilega góð og við eigum inni þar“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. mars 2026 22:21 Snorri Steinn Guðjónsson á hliðarlínunni á sínum gamla heimavelli að Hlíðarenda. vísir/anton Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, var nokkuð brattur eftir tapið gegn Svíþjóð, 33-35, í kvöld. Hann vildi sjá íslenska liðið spila sterkari vörn. „
Ég er alveg ágætlega sáttur með þessa frammistöðu. Við vorum að spila á móti góðu liði og þetta var bara jafn leikur. [Mikael] Appelgren var kannski svolítið munurinn á liðunum í seinni hálfleik,“ sagði Snorri í samtali við Vísi eftir leikinn á Hlíðarenda. „Fram á við erum við bara að skapa það sem við viljum. Það kemur smá kafli í seinni hálfleik þar sem er smá hik á þessu. Við fáum svo of mikið af mörkum á okkur og náum okkur einhvern veginn ekki í takt varnarlega og kannski þar af leiðandi er markvarslan ekki mikil. En ég er ekki fúll með þetta; svekktur með tapið og allt það en þetta var bara skemmtilegur leikur og ég fékk fullt af svörum.“ Snorra fannst sóknarleikur Íslands ganga vel í kvöld. „Þegar við fundum taktinn þar þá var hann heilt yfir mjög góður. Ég var að prófa einhverja hluti og einhverjar uppstillingar og ég var bara sáttur með það,“ sagði Snorri sem var öllu ósáttari við varnarleik Íslands. „Mér fannst það eiginlega bara alveg frá byrjun að við værum ekki alveg í takti þar. Við fengum mikið af sex metra færum á okkur og slíkt og við þurfum bara að skoða það.“ Markverðir Íslands vörðu aðeins samtals tíu skot í leiknum en fengu takmarkaða hjálp frá vörninni. „Auðvitað er þetta alltaf eitthvað beggja blands og samkvæmt tölfræðinni okkar erum við að fá mikið af sex metra færum á okkur. Mér fannst vörnin bara ekki nægilega góð og við eigum inni þar. Auðvitað erum við líka aðeins að rótera og prófa hluti og ég var ekkert alltaf með mína langsterkustu varnarlínu inni á í leiknum,“ sagði Snorri. „Til þess eru líka leikirnir gerðir og hérna en það breytir því ekki að þú vilt alltaf fá aðeins meira og vilt vinna leikinn.“
Landslið karla í handbolta Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira