Strákarnir okkar spila HM þar sem Íslendingar eru dáðir og dýrkaðir Sindri Sverrisson skrifar 20. mars 2026 10:42 Ísland er í hópi örfárra þjóða sem nú þegar vita hvar þær munu spila á HM í byrjun næsta árs. EPA/JOHAN NILSSON Nú er orðið ljóst hvar íslenska karlalandsliðið í handbolta mun spila sína leiki á næsta stórmóti; heimsmeistaramótinu í Þýskalandi í byrjun næsta árs.
Ísland mun spila í H-riðli á HM og verður sá riðill spilaður í Magdeburg en þar sóttust menn mjög eftir því að fá Íslendinga til sín. Það er engin furða enda er félagsliðið í Magdeburg með þrjá lykilmenn íslenska landsliðsins í sínum röðum sem átt hafa stóran þátt í mikilli velgengni liðsins síðustu ár. Það eru auðvitað þeir Ómar Ingi Magnússon, Gísli Þorgeir Kristjánsson og Elvar Örn Jónsson. En sagan nær vissulega lengra aftur og þegar liðið vann Meistaradeild Evrópu árið 2002, og Evrópudeildina ári áður, lék það undir stjórn Alfreðs Gíslasonar sem nú stýrir þýska landsliðinu. Ólafur Stefánsson var þá í algjöru lykilhlutverki hjá liðinu og menn á borð við Sigfús Sigurðsson, Arnór Atlason, Einar Hólmgeirsson og Björgvin Pál Gústavsson hafa einnig spilað með liðinu. Mæta nær örugglega Dönum í Hannover Fari svo að Ísland komist áfram úr sínum riðli, eins og búast má við því það gera þrjú af fjórum liðum, mun liðið spila í milliriðli í Hannover, gegn þremur liðum úr G-riðli. Það eina sem er ljóst er að liðið mun þá mæta ríkjandi Evrópu-, heims- og ólympíumeisturum Danmerkur sem búið er að raða í G-riðilinn. Af þeim sex liðum sem spila í milliriðlinum munu tvö komast áfram í 8-liða úrslit mótsins sem fram fara í Lanxess Arena í Köln líkt og undanúrslitin og úrslitin. Dregið verður í riðla fyrir HM í München 10. júní og þá skýrist betur hvaða liðum Ísland mun mæta á mótinu.
Landslið karla í handbolta HM karla í handbolta 2027 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira