Innviðir og íbúðir eiga að rísa samtímis í Hallahverfi Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 20. mars 2026 12:13 Þarna eiga innviðir, eins og götur og leikskólar, að rísa á sama tíma og húsnæði rís. reykjavíkurborg Vinningstillaga í hugmyndaleit vegna rammaskipulagsgerðar á svæði Halla og nágrennis í Úlfarsárdal var kynnt á kynningarfundi borgarstjórnar um húsnæðismál fyrir hádegi. Formaður starfshóps um innviðafélag segir að íbúðir og innviðir, eins og leikskólar og götur, eigi að byggjast upp á sama tíma.
Arkitektastofan Nordic Office of Architecture í samstarfi við Eflu og dönsku landslagsarkitektastofuna SLA var hlutskörpust í hugmyndaleitinni með tillögu sinni Hallar – samfélag við hlíðarrætur. Í Höllum er gert ráð fyrir tveimur skólahverfum sem geta einnig þjónað nýrri byggð við Leirtjörn. Megináhersla er lögð á vistvæna ferðamáta, svo sem göngu og hjólreiðar. Almenningssamgöngur fá forgang með skilgreindum almenningssamgönguási. Nú í framhaldinu verður gerður þjónustusamningur við Nordic Office of Architecture um áframhaldandi þróun rammaskipulags og gerð deiliskipulags fyrir hluta svæðisins. Á næstu vikum er stefnt að samráði við íbúa og aðra hagsmunaaðila. Arkitektastofan Nordic Office of Architecture í samstarfi við Eflu og dönsku landslagsarkitektastofuna SLA var hlutskörpust í hugmyndaleitinni með tillögu sinni Hallar – samfélag við hlíðarrætur.Reykjavíkurborg Margrét Lilja Gunnarsdóttir er formaður starfshóps um innviðafélag en hún segir að upphafið að þessari tegund uppbyggingar sé rekið til samvinnu Reykjavíkurborgar og verkalýðshreyfingarinnar. „Það var annar starfshópur sem kom með tillögu að þessari gerð af uppbyggingu þar sem að þetta yrði sett í svona innkaupaferli að hérna, og að það yrði samið við innviðafélag um uppbyggingu á hverfinu og það sem er nýtt í þessu hverfi eða nýtt í þessari hugsun hér á Íslandi er það að það er þá bæði af þessum skala, bara verktaki eða innviðafélag, sem er að byggja upp götur og fær þá byggingarrétt í staðinn og svo þegar næsti fasi er, þá gerir hann fleiri götur, leikskóla eða skóla og fær alltaf jafnóðum, þegar hann afhendir okkur innviði, þá fær hann afhentan byggingarrétt. Þannig getum við tryggt, sem er bara aðalpunkturinn með þessu öllu, að innviðir séu komnir í hverfi og séu til staðar jafnóðum og hverfið er byggt,” sagði Margrét Lilja Gunnarsdóttir, formaður starfshóps um innviðafélag.
Reykjavík Borgarstjórn Húsnæðismál Samgöngur Tengdar fréttir Bein útsending: Opinn fundur borgarstjóra um húsnæðismál Reykjavíkurborg stendur fyrir opnum fundi um húsnæðismál þar sem meðal annars verður rætt um hvernig hægt er að byggja borg fyrir fólk þar sem fólk eigi kost á öruggu heimili, góðum lífskjörum og raunhæfum valkostum. Fundurinn er í beinu streymi á Vísi. 20. mars 2026 08:32 Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Fjármálaráðherra stefnir að því að innviðafélag um stórframkvæmdir ríkisins verði stofnað í vor. Ráðgert er að fyrstu verkefni félagsins verði Ölfusárbrú, Sundabraut og Fljótagöng. 25. janúar 2026 13:25 Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Sjá meira
Bein útsending: Opinn fundur borgarstjóra um húsnæðismál Reykjavíkurborg stendur fyrir opnum fundi um húsnæðismál þar sem meðal annars verður rætt um hvernig hægt er að byggja borg fyrir fólk þar sem fólk eigi kost á öruggu heimili, góðum lífskjörum og raunhæfum valkostum. Fundurinn er í beinu streymi á Vísi. 20. mars 2026 08:32
Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Fjármálaráðherra stefnir að því að innviðafélag um stórframkvæmdir ríkisins verði stofnað í vor. Ráðgert er að fyrstu verkefni félagsins verði Ölfusárbrú, Sundabraut og Fljótagöng. 25. janúar 2026 13:25