Alcaraz veldur vonbrigðum í Miami annað árið í röð Ágúst Orri Arnarson skrifar 23. mars 2026 07:34 Efsti maður heimslistans er úr leik á Miami Open. Foto Olimpik/NurPhoto via Getty Images Efsti maður heimslistans í tennis, Carlos Alcaraz, datt óvænt úr leik á Miami Open mótinu annað árið í röð.
Alcaraz tapaði 6-3, 5-7, 6-4 fyrir Sebastian Korda, sem situr í 36. sæti heimslistans. Spánverjinn náði að jafna eftir slakt fyrsta sett og setja pressu á Bandaríkjamanninn en þurfti svo að sætta sig við tap. THE MOMENT SEBASTIAN KORDA BEAT CARLOS ALCARAZ IN MIAMIBiggest win of his lifeAt 25 years old… he’s had so many injuries, he hasn’t been allowed to fulfill his massive potentialHe’s letting nothing hold him backUnreal talent ready to thrive 🇺🇸🥹 pic.twitter.com/lx4fjJy4NM— The Tennis Letter (@TheTennisLetter) March 22, 2026 Alcaraz er ekki vanur því að tapa gegn mótherjum sem eru svona neðarlega á heimslistanum en hann datt líka óvænt úr leik á Miami Open í fyrra, þá gegn David Goffin sem var í 55. sæti heimslistans. Hann segir slakari andstæðinga spila með meira frelsi gegn sér. „Mér finnst þeir hafa meira að vinna en að tapa í þessum leikjum. Þeir spila pressulausir. Ég reyni að hugsa ekki um pressuna. Finna ekki fyrir henni. Ég reyni að gera mitt besta,“ sagði Alcaraz svekktur. Carlos Alcaraz was asked how difficult it is to accept when players play above their normal level against him, ‘It’s a bit annoying’ 😂“When you’re facing opponents who are obviously playing way above their normal level, how challenging is it to accept that and keep on finding… pic.twitter.com/WuwPX9jpq9— The Tennis Letter (@TheTennisLetter) March 23, 2026 Spánverjinn byrjaði tímabilið sterkt og fagnaði sigri á Opna ástralska en tapaði svo fyrstu viðureign tímabilsins í undanúrslitum á Indian Wells mótinu gegn Daniel Medvedev. Bandaríkjamaðurinn Korda var hins vegar kátur, enda aðeins sjötti maðurinn síðan árið 2015 til að vinna efsta mann heimslistans. Honum líður líka greinilega vel á heimavelli því hann er á leið í sextán manna úrslit annað árið í röð. Hann komst einnig í sextán manna úrslit árið 2021 en hefur ekki komist lengra á Miami Open. „Þetta er frábært. Ég fór lengri leiðina, klárlega. Aðeins meira stress en ég hefði viljað, en ég er ánægður með minn leik. Ég hafði trú á sjálfum mér, kom mér í vandræði, en hélt áfram og spilaði á endanum virkilega vel.“ Korda after beating Carlos Alcaraz in Miami“How does it feel?”Sebi: “It feels great. I took the scenic route that’s for sure 😂. A little more stress than I would want but happy with how I played and stayed with it. Kept believing. I got myself in some nasty situations 😂.… pic.twitter.com/PGk2ssl4Zp— The Tennis Letter (@TheTennisLetter) March 22, 2026
Tennis Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Körfubolti „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Körfubolti Fleiri fréttir Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu Dagskráin: Körfuboltakvöld, enska deildin og Besta kvenna Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Rúnar Ingi um bannið hans Veigars Páls: „Ég er bara niðurbrotinn sem þjálfarinn hans“ „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Matthías hættur hjá Val Sjá meira