Hvernig safna ég fyrir húsnæðiskaupum? Björn Berg Gunnarsson skrifar 24. mars 2026 07:00 Björn Berg Gunnarsson svarar lesendum Vísis aðra hverja viku. Hægt er að senda honum spurningu í spurningaforminu hér fyrir neðan. Vísir/Vilhelm 30 ára karlmaður spyr: „Blessaður Björn, við konan erum að flytja til Íslands frá Danmörku og viljum kaupa okkur hús, helst utan höfuðborgarsvæðisins. Við þurfum því að safna okkur töluverðum pening. Spurning mín til þín er því hvað þurfum við að hafa í huga? Eru einhver tips & trick fyrir fyrstu kaupendur? Eigum við að safna pening á sparnaðarreikning (sem í dag hefur góða vexti)? Allar hugmyndir vel þegnar. Bestu kveðjur.” Það verður ánægjulegt að fá ykkur aftur heim, en þetta er einmitt stórt skref og mikilvægt að undirbúa það vel. Þið þurfið að huga að ýmsu, meðal annars útborgun, lántökuskilyrðum, húsnæðisláninu sjálfu og hvernig það verður greitt niður. Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengjast fjármálum, fjárfestingum og öðru. Hvað þarf svo taka megi lán? Á námskeiðum mínum um íbúðalán er hefur þessi kafli lengst umtalsvert undanfarin misseri, enda heilmikið breyst. Hér er það helsta sem þið þurfið að kynna ykkur vel og vandlega og máta ykkur við: Hvað má lánið vera stórt? Sem fyrstu kaupendur verðið þið að safna minnst 10% af kaupverði hússins. Það er ekki þar með sagt að það dugi til að lánveitandi bjóði ykkur fjármögnun á hinum 90%, enda eru reglur lánveitenda hvað hámarkslán ólíkar og sömuleiðis hámarksfjárhæðir. Athugaðu þó að þegar farið er inn á íbúðamarkaðinn með það lítið eigið fé getur verið erfitt að endurfjármagna ef betri kjör bjóðast síðar, þar sem viðmið við endurfjármögnun eru önnur. Auk þess er þá yfirleitt um tvö eða fleiri lán að ræða, sem geta verið afar óhagstæð. Ef það er mögulegt er því gott að miða við að geta lagt fram amk. 30% við kaupin. Ýmiss skilyrði Seðlabankans Skv. nýlegum reglum Seðlabankans má greiðslybyrði lánsins ykkar ekki vera þyngri en 40% af útborguðum launum, en þið munuð einnig þurfa að standast greiðslumat. Þá verður litið til lánshæfismats ykkar og jafnvel hve lengi þið hafið búið á landinu eða greitt í lífeyrissjóð. Safnað fyrir útborgun Besta almenna ráðið sem ég get gefið ykkur varðandi það að safna fyrir útborgun er að flækja ekki málin. Undirbúið ykkur vel og haldið ykkur svo við það sem ákveðið hefur verið. Hér er dæmi um fyrstu skref: Skráið ykkur í viðbótarlífeyrissparnað við komuna heim. Þið munuð geta notað hann skattfrjálst við útborgun Tryggið ykkur fyrir öllu sem gæti brugðið fyrir ykkur fæti í ferlinu og raskað sparnaðinum. Það gerið þið með því að halda nauðsynlegan neyðarsjóð og spara með reglubundnum hætti fyrir því sem framundan er (svo sem endurnýjun á bíl og jólahaldi) Útbúið heimiisbókhald þar sem fram kemur hvert svigrúm ykkar til sparnaðar getur verið. Nánar hér: https://www.visir.is/g/20252766664d/hvernig-skipuleggjum-vid-utgjold-heimilisins- Þegar ljóst er hvað þið getið lagt mikið fyrir á mánuði má nota reiknivélar til að áætla ýmist þann tíma sem þetta mun taka ykkur, eða hve miklu þið getið safnað á fyrirframákveðnum tíma. Athugið að kaupverð eignarinnar gæti vaxið á sparnaðartímanum og því er gott að gera ráð fyrir að safna þurfi enn hærri fjárhæð en ef eignin væri keypt í dag. Nú hefjist þið handa við sparnaðinn og þá er mikilvægt að hann sé bæði sjálfvirkur og reglulegur. Hvaða sparnaðarkostir henta? Þú spyrð hvort þið ættuð að nota sparnaðarreikninga og það má vel vera, en það veltur meðal annars á því hve lengi skal spara. Það er rétt hjá þér að vextir bankareikninga eru ljómandi góðir þessa dagana og hafa verið að undanförnu. Reikningar geta verið þægilegir þar sem ekkert kostar að leggja inn á þá og þeir eru stöðugir. Þar má nefna sem dæmi húsnæðissparnaðarreikninga. Þar sem þú ert þrítugur er ekki of seint að nýta sér þá, en þeir gefa almenna nokkuð háa vexti. Aðrir kjósa að nýta sjóði við sparnað, en þeir eru mjög misjafnir og þá er mikilvægt að kynna sér kostnað, sveiflur, væntingar um ávöxtun og aðgengi. Aðalatriðið er þó að halda sig við sparnaðinn og leggja sem mest fyrir. Hvernig það tekst til mun eflaust hafa mun meiri áhrif en vextirnir. Hvaða lán verður tekið og hvar? Kynntu þér hvar þið hafið aðgengi að lánum. Hafi þið áður greitt í íslenska lífeyrissjóði sem mögulega vilja lána ykkur? Berið kjör þeirra saman við það sem bankarnir myndu bjóða. Lítið svo á smáa letrið þegar þið leitið að því hentugasta. Markmiðið er auðvitað að geta greitt lánið niður og þá er gott að velja lánsform sem bæði hentar ykkar greiðslugetu og gerir ykkur kleift að byggja upp eigið fé. Ég vona að þetta gangi vel hjá ykkur! Fjármálin með Birni Berg Fjármál heimilisins Lánamál Húsnæðismál Tengdar fréttir Hvar liggur jafnvægið í eyðslu og sparnaði? 30 ára karl spyr: Hvernig finnur maður betur jafnvægið á milli eyðslu og sparnaðar? Ég hef haldið ítarlegt bókhald um öll föst útgjöld í excel og alla neyslu síðan ég keypti mína fyrstu íbúð 24 ára. Ég er almennt duglegur að spara og borga reglulega aukalega á lánið mitt. Hinsvegar á ég stundum erfitt með að „spreða“. Ég hugsa oft „ég ætti nú frekar að setja peninginn á lánið en að kaupa X“. Er þetta óhjákvæmileg afleiðing fjármálalæsis? Góð ráð þegin til að nota peninginn stundum í eitthvað gaman og „heimskulegt“. 24. febrúar 2026 07:01 Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? 30 ára karlmaður spyr: „Getur það verið „hagstætt“ að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl?“ 10. febrúar 2026 07:02 „Hvernig eigum við unglingar að geta keypt okkur fasteign i framtíðinni?“ 17 ára kona spyr: „Hvernig eigum við unglingar að geta keypt okkur fasteign i framtíðinni? Þessar tölur hækka næstum með hverjum deginum. Lagast þetta? Hvenær þá? Og hvernig?“ 30. desember 2025 07:02 Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Fleiri fréttir 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Sjá meira
Það verður ánægjulegt að fá ykkur aftur heim, en þetta er einmitt stórt skref og mikilvægt að undirbúa það vel. Þið þurfið að huga að ýmsu, meðal annars útborgun, lántökuskilyrðum, húsnæðisláninu sjálfu og hvernig það verður greitt niður. Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengjast fjármálum, fjárfestingum og öðru. Hvað þarf svo taka megi lán? Á námskeiðum mínum um íbúðalán er hefur þessi kafli lengst umtalsvert undanfarin misseri, enda heilmikið breyst. Hér er það helsta sem þið þurfið að kynna ykkur vel og vandlega og máta ykkur við: Hvað má lánið vera stórt? Sem fyrstu kaupendur verðið þið að safna minnst 10% af kaupverði hússins. Það er ekki þar með sagt að það dugi til að lánveitandi bjóði ykkur fjármögnun á hinum 90%, enda eru reglur lánveitenda hvað hámarkslán ólíkar og sömuleiðis hámarksfjárhæðir. Athugaðu þó að þegar farið er inn á íbúðamarkaðinn með það lítið eigið fé getur verið erfitt að endurfjármagna ef betri kjör bjóðast síðar, þar sem viðmið við endurfjármögnun eru önnur. Auk þess er þá yfirleitt um tvö eða fleiri lán að ræða, sem geta verið afar óhagstæð. Ef það er mögulegt er því gott að miða við að geta lagt fram amk. 30% við kaupin. Ýmiss skilyrði Seðlabankans Skv. nýlegum reglum Seðlabankans má greiðslybyrði lánsins ykkar ekki vera þyngri en 40% af útborguðum launum, en þið munuð einnig þurfa að standast greiðslumat. Þá verður litið til lánshæfismats ykkar og jafnvel hve lengi þið hafið búið á landinu eða greitt í lífeyrissjóð. Safnað fyrir útborgun Besta almenna ráðið sem ég get gefið ykkur varðandi það að safna fyrir útborgun er að flækja ekki málin. Undirbúið ykkur vel og haldið ykkur svo við það sem ákveðið hefur verið. Hér er dæmi um fyrstu skref: Skráið ykkur í viðbótarlífeyrissparnað við komuna heim. Þið munuð geta notað hann skattfrjálst við útborgun Tryggið ykkur fyrir öllu sem gæti brugðið fyrir ykkur fæti í ferlinu og raskað sparnaðinum. Það gerið þið með því að halda nauðsynlegan neyðarsjóð og spara með reglubundnum hætti fyrir því sem framundan er (svo sem endurnýjun á bíl og jólahaldi) Útbúið heimiisbókhald þar sem fram kemur hvert svigrúm ykkar til sparnaðar getur verið. Nánar hér: https://www.visir.is/g/20252766664d/hvernig-skipuleggjum-vid-utgjold-heimilisins- Þegar ljóst er hvað þið getið lagt mikið fyrir á mánuði má nota reiknivélar til að áætla ýmist þann tíma sem þetta mun taka ykkur, eða hve miklu þið getið safnað á fyrirframákveðnum tíma. Athugið að kaupverð eignarinnar gæti vaxið á sparnaðartímanum og því er gott að gera ráð fyrir að safna þurfi enn hærri fjárhæð en ef eignin væri keypt í dag. Nú hefjist þið handa við sparnaðinn og þá er mikilvægt að hann sé bæði sjálfvirkur og reglulegur. Hvaða sparnaðarkostir henta? Þú spyrð hvort þið ættuð að nota sparnaðarreikninga og það má vel vera, en það veltur meðal annars á því hve lengi skal spara. Það er rétt hjá þér að vextir bankareikninga eru ljómandi góðir þessa dagana og hafa verið að undanförnu. Reikningar geta verið þægilegir þar sem ekkert kostar að leggja inn á þá og þeir eru stöðugir. Þar má nefna sem dæmi húsnæðissparnaðarreikninga. Þar sem þú ert þrítugur er ekki of seint að nýta sér þá, en þeir gefa almenna nokkuð háa vexti. Aðrir kjósa að nýta sjóði við sparnað, en þeir eru mjög misjafnir og þá er mikilvægt að kynna sér kostnað, sveiflur, væntingar um ávöxtun og aðgengi. Aðalatriðið er þó að halda sig við sparnaðinn og leggja sem mest fyrir. Hvernig það tekst til mun eflaust hafa mun meiri áhrif en vextirnir. Hvaða lán verður tekið og hvar? Kynntu þér hvar þið hafið aðgengi að lánum. Hafi þið áður greitt í íslenska lífeyrissjóði sem mögulega vilja lána ykkur? Berið kjör þeirra saman við það sem bankarnir myndu bjóða. Lítið svo á smáa letrið þegar þið leitið að því hentugasta. Markmiðið er auðvitað að geta greitt lánið niður og þá er gott að velja lánsform sem bæði hentar ykkar greiðslugetu og gerir ykkur kleift að byggja upp eigið fé. Ég vona að þetta gangi vel hjá ykkur!
Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengjast fjármálum, fjárfestingum og öðru.
Fjármálin með Birni Berg Fjármál heimilisins Lánamál Húsnæðismál Tengdar fréttir Hvar liggur jafnvægið í eyðslu og sparnaði? 30 ára karl spyr: Hvernig finnur maður betur jafnvægið á milli eyðslu og sparnaðar? Ég hef haldið ítarlegt bókhald um öll föst útgjöld í excel og alla neyslu síðan ég keypti mína fyrstu íbúð 24 ára. Ég er almennt duglegur að spara og borga reglulega aukalega á lánið mitt. Hinsvegar á ég stundum erfitt með að „spreða“. Ég hugsa oft „ég ætti nú frekar að setja peninginn á lánið en að kaupa X“. Er þetta óhjákvæmileg afleiðing fjármálalæsis? Góð ráð þegin til að nota peninginn stundum í eitthvað gaman og „heimskulegt“. 24. febrúar 2026 07:01 Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? 30 ára karlmaður spyr: „Getur það verið „hagstætt“ að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl?“ 10. febrúar 2026 07:02 „Hvernig eigum við unglingar að geta keypt okkur fasteign i framtíðinni?“ 17 ára kona spyr: „Hvernig eigum við unglingar að geta keypt okkur fasteign i framtíðinni? Þessar tölur hækka næstum með hverjum deginum. Lagast þetta? Hvenær þá? Og hvernig?“ 30. desember 2025 07:02 Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Fleiri fréttir 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Sjá meira
Hvar liggur jafnvægið í eyðslu og sparnaði? 30 ára karl spyr: Hvernig finnur maður betur jafnvægið á milli eyðslu og sparnaðar? Ég hef haldið ítarlegt bókhald um öll föst útgjöld í excel og alla neyslu síðan ég keypti mína fyrstu íbúð 24 ára. Ég er almennt duglegur að spara og borga reglulega aukalega á lánið mitt. Hinsvegar á ég stundum erfitt með að „spreða“. Ég hugsa oft „ég ætti nú frekar að setja peninginn á lánið en að kaupa X“. Er þetta óhjákvæmileg afleiðing fjármálalæsis? Góð ráð þegin til að nota peninginn stundum í eitthvað gaman og „heimskulegt“. 24. febrúar 2026 07:01
Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? 30 ára karlmaður spyr: „Getur það verið „hagstætt“ að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl?“ 10. febrúar 2026 07:02
„Hvernig eigum við unglingar að geta keypt okkur fasteign i framtíðinni?“ 17 ára kona spyr: „Hvernig eigum við unglingar að geta keypt okkur fasteign i framtíðinni? Þessar tölur hækka næstum með hverjum deginum. Lagast þetta? Hvenær þá? Og hvernig?“ 30. desember 2025 07:02