Kvótinn: Þriðji valkosturinn Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar 23. mars 2026 11:47 Við eigum sjóinn. Það er ekki skoðun – það er dómur Hæstaréttar. Auðlindin er sameign þjóðarinnar. Kvótinn sem var úthlutað var á sínum tíma er afnotaréttur, ekki eignarréttur. Ríkið veitti hann – ríkið getur því tekið hann til baka. Með sanngirni. Með aðlögunartíma. Með lýðræðislegri ákvörðun. Lagaramminn er þegar til staðar. Dómstólar hafa staðfest að ríkið megi breyta kerfinu – þeir hafa bara sagt að gera verði það af virðingu. Og það er einmitt það sem við getum gert. „En þetta yrði okkur svo dýrt!“ Já, þetta yrði kostnaðarsamt. En við höfum fordæmi fyrir því hvað svona nokkuð kostar. Í Makríldeilunni kröfðust sjávarútvegsfyrirtækin milljarða – en fengu miklu minna. Þáverandi fjármálaráðherra lagði þá fram tillögu um að sjávarútvegurinn sjálfur fjármagnaði bæturnar með tímabundnu gjaldi. Það frumvarp varð ekki að veruleika, en hugmyndin er algjörlega frábær hjá Bjarna Ben – og hún er sjálfur lykillinn. Ef við viljum endurheimta kvótann, þá gerum við það vitanlega svona: Látum þau greiða fyrir umstangið, sem hafa notið góðs af kerfinu. Ekki skattgreiðendur. Ekki heilbrigðiskerfið. Heldur þá milljarðasjóði sem hafa safnast í vasa kvótaeiganda í þrjá áratugi. Við erum frjáls til athafna – en mikið hafa stjórnvöld á sig lagt, svo við mættum gleyma því! Hver vill passa okkur? Við pössum okkur sjálf! Það er djúpt umkomuleysi sem býr í hjörtum okkar Íslendinga og inngróin tilfinning fyrir því að við þurfum alltaf að hafa yfir okkur aðrar þjóðir í hlutverki foreldra. Þannig hefur það verið, en þess gerist ekki lengur þörf. Ísland er fullvaxta. Við höfum átt allskonar foreldra: Dani, Breta, Bandaríkjamenn, Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, Brussel – og um alllangt skeið líka innlendu yfirboðarana: kvótaeigendur. En frelsi er meðfætt. Það býr í okkur. Við erum frjáls til að taka aðrar og betri ákvarðanir. Við gleymdum því bara af því að okkur hefur verið sagt í meira en 30 ár að frelsi væri ekki valkostur fyrir Íslendinga. Að reglum væri ekki hægt að breyta og því gætum við bara ekkert gert! Það eru ósannindi. Margtuggin ósannindi virðast sönn ef þau eru endurtekin nógu oft. Nú þurfum við að rifja upp, hvað er raunverulegt og hvað ekki. Hvernig förum við að? Við gerumst innheimtumenn! Við þurfum ekki nýjan stjórnmálaflokk. Við þurfum ekki nýja stjórnmálaforingja. Við þurfum bara að muna að valdið er enn hjá þjóðinni. Við höfum meira að segja ágætis stjórnsýslulög sem munu hjálpa við framkvæmdina. Heimildir til þjóðaratkvæðagreiðslu eru til staðar í stjórnarskránni. Lítil prósenta kjósenda getur krafist þess að frumvarp um endurheimt auðlinda fari í þjóðaratkvæði. Sveitarfélögin geta tekið afstöðu og lagt þrýsting á Alþingi. Þau eiga þegar mikið undir kvótakerfinu vegna byggðasjónarmiða – sveitarfélögin geta krafist breytinga. Við þurfum einfaldlega að tala okkur saman. Á heimilum okkar, vinnustöðum, á netinu. Ef við rifjum það upp í sameiningu, að þriðji valkosturinn er raunverulegur, þá mun það rifjast upp fyrir öðrum að það ER ennþá raunverulegur möguleiki, að endurheimta kvótann! Nú er rétti tíminn – nú er lag! Langbesti kosturinn fyrir landsmenn Gamli heimurinn – kvótakerfið, regluverkið sem við kusum aldrei, stjórnsýslan sem þrefaldaðist á meðan við rifumst – sá heimur er ekki aðlaðandi. Hann virkar ekki fyrir allan þorra almennings. Við þurfum ekki að vera meðvirk með þeirri súru veröld stundinni lengur. Við getum endurheimt auðlindirnar. Við getum ráðstafað þeim eins og frjálst fólk. Við getum byggt upp samfélag þar sem raddir almennings vega þyngra en launaseðlar lobbista og embættismanna. Þetta er ekki fjarlægur draumur. Þetta er lagalegur, raunhæfur og þegar mögulegur valkostur. Spurningin er því ekki hvort við getum – spurningin er hvort við viljum? Við getum enn gert það sem er okkur fyrir bestu. Við erum frjáls. Því var bara logið að okkur að við værum það ekki. Hvað er því næst á dagskrá? Paradísarheimt! Höfundur er leikkona. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir Mest lesið Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Skoðun Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar