Vegalokanir, snjóflóðahætta og óvissustig Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 23. mars 2026 14:39 Svona er veðrið á Hellisheiðinni. Vegagerðin Fjöldi vega víða um land hefur verið lokað vegna veðurs, þar á meðal Hringvegurinn og Hellisheiðin. Óvissustig er í gildi víða og má búast við að fleiri vegum verði lokað. Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir og er óvissustig á Austurlandi vegna snjóflóðahættu.
Hringveginum hefur verið lokað alveg frá Steinum undir Eyjafjöllum að Höfn í Hornafirði. Upplýsingar um vegalokanir má nálgast á vefsíðu Vegagerðarinnar, umferðin.is. Hellisheiði, Mosfellsheiði, Þrengslum, Suðurstrandavegi og Krýsuvíkurvegi hefur verið lokað vegna veðurs. Þá er vegurinn á Kjalarnesi á óvissustigi til miðnættis og Grindavíkurvegur og Reykjanesbraut til klukkan níu í kvöld. Það þýðir að vegunum getur verið lokað með skömmum fyrirvara. Líkt og sjá má á myndum sem birtar hafa verið í Facebook-hópnum Hvernig er færðin á Hellisheiði, Þrengslum og Suðurlandi? má sjá heilu bílaraðirnar sem mynduðust áður en lokað var fyrir umferð um Hellisheiðina. Á Vesturlandi eru Holtavörðuheiði, Brattabrekka, Fróðárheiði og vegurinn um Hafnarfjall á óvissustigi frá klukkan þrjú. Ófært er um Dynjandisheiði á Vestfjörðum vegna fastra bíla og lélegs skyggnis. Á Norðurlandi er lokað fyrir umferð um Víkurskarð í dag. Vegurinn um Þverárfjall, Siglufjarðarvegur, Vatnsskarð og Öxnadalsheiði verða á óvissustigi frá klukkan fjögur síðdegis. Þá er Vopnafjarðarheiði, Möðrudalsöræfi og Mýrdalsöræfi á óvissustigi frá klukkan þrjú. Sama er í gildi á Fjarðarheiði, í Fagradal og Vatnsskarði eystra fyrir austan. Núna klukkan þrjú síðdegis eru gular veðurviðvaranir í gildi á Suðurlandi, Suðausturlandi, Miðhálendinu og í Faxaflóa. Síðar í dag taka gular veðurviðvaranir gildi á öllu Norðurlandi, Vestfjörðum og Austurlandi. Einnig er óvissustig vegna snjóflóðahættu á Austfjörðum. Spáð er mikilli ofankomu sem byrjar eftir hádegi og verður mesta úrkomuákefðin seinnipartinn og fram á kvöld.
Færð á vegum Umferð Snjóflóð á Íslandi Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Sjá meira