Týnd börn – við megum ekki líta undan Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar 25. mars 2026 14:00 Viðkvæmur hópur sem þarfnast aðhlynningar virðist nánast ósýnilegur í íslensku samfélagi. Kerfið hefur svo oft brugðist þeim að margar þeirra leita sér einfaldlega ekki hjálpar. Stúlkur og konur í neyslu sem verða ófrískar fara gjarnan hvorki til læknis né leita sér hjálpar hjá félagsþjónustu af ótta við að missa börnin sín eftir fæðingu. Sá ótti er því miður ekki byggður á misskilningi heldur reynslu þeirra af kerfinu, oft allt frá barnæsku. Þann 22. mars birtist á Vísi viðtal sem Eiður Þór Árnason tók við Guðfinnu Eyrúnu Ingjaldsdóttur, foreldrafræðslu- og uppeldisráðgjafa, þar sem fjallað var um nýbakaðar mæður sem halda sig í felum vegna þess að þær vita hvernig kerfið virkar. Það er átakanleg lesning sem ætti að snerta okkur öll, en virðist enn sem komið er ekki fá þann hljómgrunn sem efnið krefst. Þarna blasir við verkefni sem er bæði brýnt og mikilvægt. Verkefni sem gæti sparað þessum konum mikla þjáningu og jafnvel mikinn samfélagslegan kostnað ef gripið væri inn í nógu snemma og hringrásin rofin. Hugsið ykkur að konur – jafnvel ungar stúlkur undir lögræðisaldri – fari í gegnum meðgöngu og fæðingu án nokkurrar aðstoðar heilbrigðisstarfsfólks. Sumar missa börnin sín og enginn fær að vita af því. Börn fæðast andvana og mæðurnar takast á við það áfall einar. Þau börn sem lifa eru stundum óskráð og falla jafnvel utan bæði heilbrigðiskerfis og menntakerfis. Týnd börn! Viljum við hafa þetta svona? Þarf þetta að vera svona? Nei. Við verðum að gera eitthvað í þessu. Það þarf að rétta þessum konum hjálparhönd og skapa úrræði sem þær geta treyst, þora að treysta og mega treysta. Ég veit um tilfelli þar sem kona blæddi næstum út þegar hún missti fóstur, eftir að hafa haldið óléttunni leyndri af ótta við afleiðingarnar. Hún var komin sjö mánuði á leið. Sem betur fer komst hún undir læknishendur, en hún hafði ætlað að eiga barnið og ala það upp sjálf — án þess að kerfið tæki það frá henni. Ef hún hefði þorað til læknis fyrr er alls ekki víst að hún hefði misst barnið. Hún hefði heldur ekki þurft að standa ein frammi fyrir lífshættu í yfirgefnu húsi án vatns, hita og rafmagns. Guðfinna bendir á að víða erlendis hafi verið þróuð sérstök úrræði fyrir þennan hóp. Af hverju hefur það ekki verið gert hjá okkur? Það hljóta allir að vera sammála um að það sé brýnt verkefni að koma slíkum úrræðum á laggirnar. Og ef kerfið gerir það ekki – þurfum við þá ekki sjálf að stíga fram, eins og svo oft áður? Ég hef því miður ekki lengur þann kraft sem slíkt verkefni krefst og fjármagn hef ég ekki. En ég myndi leggja þessu lið eftir bestu getu og ég er sannfærð um að mörg ykkar mynduð gera það líka. Hér þarf samstillt átak og drífandi fólk. Við getum þetta — eins og aðrar þjóðir. Ég hef óbilandi hefur trú á góðvild og krafti samlanda sinna Höfundur er aðstandandi og baráttukona um betra líf fyrir fíknisjúka. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmunda G. Guðmundsdóttir Mest lesið Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Sjá meira
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar