KA-menn fögnuðu eftir rosalegan leik í Eyjum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. mars 2026 20:29 Ágúst Elí Björgvinsson átti stórleik í marki KA í Vestmannaeyjum í kvöld. Vísir/Pawel Úrslitakeppni Olísdeildar karla í handbolta byrjaði á svakalegum tvíframlengdum leik úti í Vestmannaeyjum í kvöld.
KA er einum sigri frá undanúrslitunum eftir 34-33 sigur á ÍBV í Vestmannaeyjum. Eyjamenn fengu tækifæri til að tryggja sér sigurinn í lokasókn venjulegs leiktíma og fyrstu framlengingu en KA-menn lifðu það af og tryggðu sér síðan gríðarlega mikilvægan sigur í annarri framlengingunni. Ágúst Elí Björgvinsson átti stórleik í marki KA með 21 skot varin, þar af tvö víti. Hann átti einnig þrjár stoðsendingar fram völlinn. Einar Rafn Eiðsson var markahæstur hjá KA með átta mörk og Bjarni Ófeigur Valdimarsson bætti við sjö mörkum og sjö stoðsendingum. Magnús Dagur Jónatansson og Morten Linder skoruðu báðir fjögur mörk. Dagur Arnarsson var markahæstur hjá ÍBV með tíu mörk og Elís Þór Aðalsteinsson skoraði sjö mörk. Petar Jokanovic varði líka vel í markinu eða tuttugu skot. Næsti leikur fer fram í KA-húsinu en þar geta KA-menn tryggt sér sigur í einvíginu og sæti í undanúrslitunum. KA-menn byrjuðu leikinn vel, voru með frumkvæðið stærstan hluta fyrri hálfleiksins og voru svo tveimur mörkum yfir í hálfleik, 13-11. KA-liðið var með þriggja marka forskot um tíma í seinni hálfleiknum en Eyjamenn unnu það upp og komust aftur yfir í stöðunni 24-23. ÍBV var tveimur mörkum yfir, 26-24, en náði ekki að halda því því Akureyrarliðið skoraði tvö síðustu mörkin í venjulegum leiktíma. Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði jöfnunarmarkið en Ágúst Elí Björgvinsson varði lokaskot Eyjamanna og tryggði liði sínu framlengingu. ÍBV skoraði fyrsta markið í framlengingunni en það var áfram hnífjafnt. Í lok hennar varði Ágúst Elí víti, Eyjamenn náðu síðan aftur ekki að nýta loksóknina sína og því þurfti að framlengja leikinn aftur. KA-menn voru sterkari í annarri framlengingunni og eru núna í frábærri stöðu með næsta leik á hinum geysisterka heimavelli sínum.
Olís-deild karla KA ÍBV Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira