Viðskipti innlent

Brimgarðar kaupa tíu milljónir hluta í Reitum

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Reitir eru til húsa í Kringlunni.
Reitir eru til húsa í Kringlunni. Vísir/Rakel Ósk

Brimgarðar hafa keypt tíu milljónir hluta í fasteignafélaginu Reitir og gerir það eigendur Brimgarðs að stærstu einkaeigendum í tveimur af þremur stærstu fasteignafyrirtækum landsins.

Með kaupunum eiga Brimgarðar því tæp sex prósent í fasteignafyrirtækinu sem gerir þau að stærstu einkaeigendum í fyrirtækinu. Fyrir áttu Brimgarðar rúmlega 31 milljón hluta en hafa fest kaup á tíu milljónum til viðbótar.

Í flöggun til Kauphallar segir að eign Brimgarða í Reitum nemi nú 5,93 prósentum.

Tvö systkinanna sem kennd eru við Mata, Guðný Edda og Gunnar Þór Gíslabörn, auk sonar Gunnars, Ingólfs Árna, eru skráðir eigendur Brimgarða. Þá eiga systkinin einnig Langasjó ehf. með öðrum tveimur systkinum sínum, Eggerti Árna og Halldóri Páli. 

Þegar eiga Brimgarðar rúmlega tuttugu prósenta hlut í fasteignafélaginu Eik og sömuleiðis á Langisjór rúm þrettán prósent. Fyrir rúmu ári síðan keyptu Brimgarðar, sem þá var í eigu Mata-systkinanna, hluti í Eik fyrir 238 milljónir króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×