Grindvíkingar harma og fordæma hegðunina Valur Páll Eiríksson skrifar 2. apríl 2026 12:45 Menn óðu út á völlinn úr stúkunni í gær. vísir / guðmundur Körfuknattleiksdeild Grindavíkur hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna uppákomu í leik liðsins við Njarðvík á heimavelli fyrrnefnda liðsins í Bónus deild karla í körfubolta í gær.
Líkt og greint var frá í gærkvöld sauð hressilega upp úr undir lok leiks Grindavíkur við Njarðvík í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar í Bónus deild karla. Stimpingar milli leikmanna undu upp á sig þar sem gæslumenn og lögreglufólk þurfti að blanda sér í leikinn eftir að stuðningsmenn fóru inn á völlinn til að taka þátt í átökunum. Málið er nú á borði aganefndar KKÍ sem mun taka málið fyrir í dag og á morgun og niðurstöðu að vænta hvað leikbönn og sektir varðar á laugardaginn. Körfuknattleiksdeild Grindavíkur sendi frá sér yfirlýsingu um hádegisbilið vegna atviksins þar sem hegðun stuðningsmanna er hörmuð og fordæmd. Viðkomandi hafi beðist afsökunar sinni hegðun. Deildin muni enn fremur endurskoða verklag í kringum leiki í Grindavík vegna atviksins. Yfirlýsinguna má sjá í heild að neðan. Njarðvík vann óvæntan tíu stiga sigur í leiknum í gær, 97-87, gegn deildarmeisturum Grindavíkur sem hafa ekki tapað leik í Grindavík í allan vetur. Njarðvík leiðir einvígi liðanna því 1-0 fyrir annan leik liðanna sem fram fer í IceMar-höllinni í Reykjanesbæ á mánudagskvöld. Yfirlýsing körfuknattleiksdeildar Grindavíkur: Körfuknattleiksdeild UMFG harmar einlæglega þau atvik sem áttu sér stað undir lok leiksins og biðst afsökunar við körfuknattleiksdeild Njarðvíkur, leikmenn, þjálfara, starfsfólk, dómara, KKÍ, stuðningsfólk og alla körfuknattleiksfjölskylduna. Við fordæmum þá hegðun sem þarna átti sér stað. Það er óásættanlegt þegar stuðningsmaður gengur að leikvellinum með þeim hætti sem gerðist. Viðkomandi hefur beðist afsökunar á framferði sínu. Sem mótshaldari munum við fara yfir málið af fullri alvöru, endurmeta verklag og öryggisfyrirkomulag og grípa til nauðsynlegra úrbóta. Við viljum jafnframt þakka dómurum, gæslu og lögreglu fyrir skjót og ákveðin viðbrögð þegar á reyndi. Körfuknattleiksdeild UMFG stendur fyrir ástríðu, baráttu og sterkt körfuboltasamfélag, en líka virðingu og góða umgjörð. Atvikin undir lok leiksins voru ekki í anda þeirra gilda sem félagið stendur fyrir og verður brugðist við af ábyrgð og festu.
UMF Grindavík UMF Njarðvík Bónus-deild karla Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Fótbolti Ferðaðist ekki með liðinu Fótbolti Maður dagsins á HM: Jafnfætti prinsinn jafnaði sig í tæka tíð Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira