Ísland, Grænland og Færeyjar saman hefðu sterka samningsstöðu Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 2. apríl 2026 12:56 Eldur Ólafsson er stofnandi og forstjóri málmleitarfélagsins Amaroq minerals, sem vinnur að gullgreftri í Grænlandi. Eldur Ólafsson forstjóri Amaroq Minerals segir að ef Ísland, Færeyjar og Grænland semji um fríverslunarsamning og sameini krafta sína séu þau í afar sterkri samningsstöðu gagnvart Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu. Norður-Atlantshaflöndin skipti nú heiminn máli og það eigi þau að nýta sér fram í rauðan dauðann.
Eldur skrifaði grein sem birtist í Morgunblaðinu í dag fyrir hönd Verkefnisins Inneq svokallaðs. Greinin er stíluð á ríkisstjórnina en í henni hvetur Eldur til að Ísland, Færeyjar og Grænland gangi saman til samninga við umheiminn og styrki þannig stöðu sína. Stærri Hoyvíkursamningur Hann segir í samtali við fréttastofu að fyrir liggi fyrirmynd að slíkum samningi: Hoyvíkursamningurinn sem er fríverslunarsamningur milli Íslands og Færeyja. Hann segir Eldur einn þann besta sem Ísland hefur gert. „Árið 2005 ætluðu grænlendingar að vera með í þessum samningi en hættu við. Verkefnið Inneq miðar að því að taka þennan samning og færa Grænland inn í hann. Öll saman myndum við alveg gríðarlega sterka heild.“ Inneq þýðir einmitt eldur á grænlensku en hópinn segir Eldur samanstanda af einstaklingur, stórum lögfræðistofum innlendum og erlendum og öflugum fyrirtækjum sem hann kveðst ekki geta gefið upp hver eru. „Inneq-hópurinn hefur séð tækifæri og það er oft þægilegra fyrir einkaaðila að geta átt svona samræður við stjórnvöld og viðrað málin,“ segir hann. Ekki spurning um með eða á móti ESB Stórveldi heimsins vilji hafa ítök í Norður-Atlantshafi og eyríkin verði að nýta sér það. „Ef öll þrjú lönd segjast vilja gera fríverslunarsamning við Evrópu til dæmis til að fella niður mengunarskatta þá myndarðu þér samningsstöðu til að fá þá hluti sem þú þarft. Málmar skipta máli, varnarmál skipta máli,“ segir Eldur. Hann segir þetta ekki spurningu um að vera með eða á móti Evrópusambandinu heldur um að byrja á næsta nágrenni okkar. „Það mun taka styttri tíma en innganga í Evrópusambandið, ég get lofað því.“ „Í gegnum Norðurlandasamstarfið erum við með flesta samninga klára. Við erum flestöll með skattasamninga okkar á milli. Við skiptum svo miklu máli núna og við eigum að nýta okkur það fram i rauðan dauðann,“ segir Eldur Ólafsson forstjóri Amaroq Minerals.
Færeyjar Grænland Danmörk Utanríkismál Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bíði og bíði eftir Bjarna Innlent Fleiri fréttir Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Sjá meira