„Við gátum bara ekki komið boltanum ofan í körfuna“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 3. apríl 2026 20:14 Israel Martin er þjálfari Tindastólskvenna. Vísir/Jón Gautur Israel Martin átti erfitt með að skilja hvað olli hryllilega slæmri skotnýtingu Tindastóls í 58-88 tapi gegn Njarðvík. Stólarnir eru lentir 2-0 undir og detta úr keppni með tapi í næsta leik. „
Við byrjuðum leikinn mjög illa og eftir fyrsta leikhlutann var leikurinn eiginlega bara farinn frá okkur. Við klikkuðum á skotum og misstum síðan bara sjálfstraustið. Varnarlega var þetta samt allt í lagi, þær skoruðu 42 stig í fyrri hálfleik, sem er ekkert svo slæmt. Síðan mættum við betur út í seinni hálfleikinn, með meiri orku. En hittum samt bara úr 1 af 26 þriggja stiga skotum, við gátum bara ekki komið boltanum ofan í körfuna. Þá misstum við sjálfstraustið og Njarðvík var bara miklu betri en við í dag,“ sagði þjálfarinn í viðtali við Arnar Skúla Atlason eftir leik. Israel ítrekaði að varnarleikur liðsins hefði ekki verið stóra vandamálið í kvöld. Skotnýting liðsins fyrir aftan þriggja stiga línuna var stóra vandamálið í hans augum. „Mér fannst við gera allt í lagi varnarlega, við töluðum allavega um það í fyrri hálfleik. En okkur vantaði bara að setja þriggja stiga skot ofan í, til að opna þær aðeins og búa til pláss fyrir Madi[son Sutton]. Við erum með góða skotmenn en við vorum ekki að hitta og létum það fara í taugarnar á okkur.“ Tindastóll þarf núna nauðsynlega á sigri að halda þegar liðin mætast aftur næsta miðvikudag. „Núna þurfum við bara að einbeita okkur að næsta leik, við höfum ekki neinu að tapa. Við munum reyna að njóta og ná sigri til að geta snúið aftur í Skagafjörðinn. Við munum berjast fyrir þessum sigri.“
Bónus-deild kvenna Tindastóll UMF Njarðvík Mest lesið Fíklar í fráhvörfum: „Öskra þarna á einn átta ára að gefa boltann“ Enski boltinn UEFA logar í ljósi áforma Infantino: „Sál fótboltans ekki til sölu“ Fótbolti Uppgjörið: Hapoel Be'er Shiva - Víkingur 2-0 (3-2) | Bitnir í rassinn Íslenski boltinn Fulltrúar KSÍ á leið á neyðarfund: „Of snemmt að taka afstöðu“ Fótbolti Gylfi ósáttur: „Ótrúleg ákvörðun hjá KSÍ“ Sport Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Handbolti Nefbraut samherja sinn á æfingu hjá Keflavík Íslenski boltinn Besti handboltamaður heims fór í markið Handbolti Kröfur umboðsmanns Salah valda vandræðum Fótbolti Sonurinn skaut móður sína Sport Fleiri fréttir Milka farinn frá Njarðvík Birmingham stigahæstur í þriðja sigri strákanna KR heldur áfram að sækja leikmenn frá Lettlandi Martin áfram í Berlín Nýr leikmaður Tindastóls féll á lyfjaprófi þegar hann spilaði í G-deild NBA Keflvíkingar semja við Litáa og Stólarnir fá Bandaríkjamann Íslenska liðið með stórsigur á EM Vann þriggja stiga skotkeppni WNBA og skoraði á Curry Mirza Bulic yfirgefur Keflavík og semur við Grindavík Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Trump kallar LeBron James kynþáttahatara Byrjuðu á nítján stiga sigri á Portúgölum LeBron hélt að hann væri búinn að spila sinn síðasta leik Lebron fer til Fíladelfíu Stephen Curry fær sögulega einkasýningu í heiðurshöllinni Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum KR sækir sænskan landsliðsmann Tékki til Njarðvíkur Miami Heat birti hlekk á blaðamannafund LeBron James fyrir mistök Semple bætist við stjörnum prýtt lið Álftaness Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Sjá meira