„Þetta gekk eins og í lygasögu“ Lovísa Arnardóttir skrifar 4. apríl 2026 12:15 Páll Óskar skemmti gestum á Aldrei fór ég suður í gær. Aldrei fór ég suður Kristján Freyr Halldórsson, rokkstjóri Aldrei fór ég suður, segir hátíðin hafa gengið glimrandi vel í gær. Veðrið hafi leikið við gesti hátíðarinnar og von sé á stórskemmtun í kvöld þegar Joey Christ, Alaska1867 og Skítamórall stíga á svið.
Hann telur þúsundir hafa komið á hátíðina í gær og á von á öðru eins í kvöld. „Þetta gekk eins og í lygasögu, ég hreinlega er ekki enn kominn úr skýjunum. Það var rjómablíða framan og kom svo einhvern veginn svona jólakafld, eða páskakafald í enda dagskrár og það voru allir brosandi og allt eins og við viljum hafa það,“ segir Kristján Freyr. Þessar stúlkur skemmtu sér vel á Aldrei fór ég suður í gær. Aldrei fór ég suður Færðin ekki að spilla Hann segir gesti hafa skemmt sér vel og tónlistarfólkið hafa slegið í gegn. Hann segir færð ekki hafa haft áhrif. „Ég var akkúrat að koma af flugvellinum og var að skila af mér tónlistarfólki sem var að skemmta í gær sem þurfti að komast aftur til sinna heima og fékk innáskipt nokkrum hljómsveitum sem skemmta í kvöld. Það er blár himinn og sól.“ Hann segir hafa snjóað í gær en ekki það mikið að það hafi spillt skemmtun. „Hér er allt einhvern veginn eins og að labba um í póstkorti. Ég er ekki að grínast.“ Hátíðin er líka fjölskylduhátíð. Aldrei fór ég suður Ókeypis er á hátíðina og því ekki hægt að áætla fjölda út frá seldum miðum. Kristján Freyr telur að þúsundir hafi mætt í gær. „Það komast ekki allir fyrir í skemmunni, vitanlega, en við erum með frábært útisvæði og hljóðkerfi sem hljómsveitin Rage Against the Mchine notaði þegar þeir komu til Íslands fyrir nokkrum árum síðan, og stóran útiskjá. Þannig fólk nýtur þess að vera úti og spjalla saman í góða veðrinu.“ „Það ná mjög margir að njóta og við fengum fullt af gestum í gær og ég er ekki frá því að það hafi verið slegið eitthvað met.“ Kristján Freyr segir alltaf hafa verið ókeypis á hátíðina og það standi ekki til að breyta því. Það sé sveitarfélaginu, bakhjörlum og íbúum að þakka. „Við erum sjúklega þakklát fyrir alla þessa aðstoð og hvað gestir skemmta sér fallega.“ Hann segir dagskrá víða um Vestfirði um páskana og margt að gerast. Hann segir kvöldið í kvöld byrja á rokki. Aðstandendur hafi gengið í fóstbræðralag með Bræðslunni og fyrsta band á svið í kvöld, Chögma, komi að austan. „Það er fjári gott rokk sem við byrjum á.“ Ungir sem aldnir skemmta sér saman á Ísafirði. Aldrei fór ég suður Bland í poka Eftir það taki goth-rokksveitin Kælan mikla við og svo eftir það annars konar tónlist þegar Úlfur Úlfur, Alaska 1867 og Joey Christ stíga saman á svið og svo Skítamórall síðastir. „Svo er þetta bara þetta bland í poka sem áhorfendur og gestir Aldrei fór ég suður eru vanir og taka alltaf vel á móti því sem er boðið upp á á sviðinu.“ „Við viljum að þetta sé fjölskylduhátíð, og hún er það,“ segir hann og að dagskrá hefjist yfirleitt um kvöldmatarleytið og ljúki um miðnætti. „Skítamórall slær botninn í þetta undir miðnætti. Við hlökkum mikið til að halda risastórt ball undir lok dagskrár í kvöld og fögnum þessari hátíð sem er sirka 21. eða 22. hátíðin. Það er engan bilbug á okkur að finna. Það er þvílík stemning í okkar herbúðum.
Páskar Aldrei fór ég suður Ísafjarðarbær Tónlist Tónleikar á Íslandi Mest lesið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Kampakát yfir kampavíni og kavíar Lífið Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Fleiri fréttir Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Sjá meira