Gul viðvörun vegna austan stórhríðar annan í páskum Lovísa Arnardóttir og Smári Jökull Jónsson skrifa 4. apríl 2026 16:07 Viðvörunin er í gildi fyrir landið allt. Veðurstofan Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna austan stórhríðar á landinu öllu á mánudag. Viðvörunin tekur gildi klukkan átta á mánudagsmorgun og er í gildi þar til klukkan fjögur aðfaranótt þriðjudags. Viðvaranir verða mögulega uppfærðar í appelsínugular á morgun.
Í viðvörun segir að það í gangi austan 18 til 28 metra á sekúndu, hvassast syðst, en hægari vindur norðanlands fram eftir degi. „Spáð er talsverðri eða mikilli snjókomu, einkum sunnan- og austantil. Hlýnar smám saman um kvöldið og fer að rigna sunnantil. Búast má við talsverðum samgöngutruflunum og versnandi akstursskilyrðum. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám,“ segir í viðvörun Veðurstofunnar. Uppfæra svæðisspár á morgun Marcel de Vries, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir þessu fylgja mikil snjókoma sem færist yfir landið til norðurs. „Það byrjar sunnanlands fyrir hádegi og seinnipartinn og um kvöldið hvessir líka á Norðurlandi,“ segir hann og að á þeim tíma hláni sunnanlands og úrkoman breytist í rigningu auk þess sem það dregur þá úr vindi. Þá verði enn austanhríð á Norðausturlandi. Marcel segir líklegt að þetta geti valdið samgöngutruflunum og jafnvel lokunum á ýmsum fjallvegum. Páskarnir eru ein stærsta ferðahelgi ársins og mikill fjöldi á Vestfjörðum, Norðurlandi og á Austurlandi. Búast má því við því að þetta muni hafa áhrif á ferðalög margra. „Ég held að það verði best jafnvel að ferðast á sunnudag eða þriðjudag.“ Hann segir líklegt að það geti verið foktjón. Fyrri part dagsins verði versta veðrið sunnanlands, líklega verst um hádegisbil, og svo þegar líður á daginn verði það verra norðanlands. Hann segir að á höfuðborgarsvæðinu verði hvasst og mikil snjókoma. Hann gerir ráð fyrir 15 til 20 metrum á sekúndu þar og talsverðri snjókomu. Marcel segir viðvörun í gildi vegna snjóflóðahættu og að það eigi töluvert að bæta í snjóinn á mánudag. Hann segir að mögulega verði viðvaranir uppfærðar þegar nær dregur og á morgun verði gefnar út viðvaranir fyrir sérhvert landsvæði og líklegt sé að gefnar verði út appelsínugular viðvaranir fyrir ákveðin landsvæði. Fréttin hefur verið uppfærð með viðtali við veðurfræðing. Uppfærð klukkan 16:22 þann 4.4.2026.
Veður Færð á vegum Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir Spáð hlýju veðri norðaustantil Víða skúrir en allt að tuttugu stigum austanlands Stinningskaldi og súld suðvestanlands Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Lægðardrag fikrar sig nær og bætir í úrkomu í nótt og á morgun Bjart að mestu í dag en lægð nálgast á morgun Bjartviðri í flestum landshlutum Bjart og sólríkt víðast hvar Allt að nítján stiga hiti í dag Bjart víðast hvar á landinu í dag Veður með rólegasta móti um helgina Norðanáttin ríkjandi og hiti að tuttugu stigum sunnantil Allmikil lægð þokast norðaustur Litlar líkur á skýjahulan brotni en líklegast norðvestantil Hiti að átján stigum Bjart og milt í dag og allt að nítján stiga hiti Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Talsverð úrkoma á Austurlandi Líkur á skriðuföllum á Norðvestur- og Norðausturlandi Rigning og súld á öllu landinu Vaxandi lægð yfir landinu og rigning í kortunum Von á lægðarsvæði í átt að landinu úr suðvestri Þurrasti júlímánuður á Akureyri í níutíu og sjö ár Bjartviðri sunnan heiða en stöku skúrir vestan til Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Hiti á bilinu sjö til tuttugu stig Vara við snörpum vindhviðum Vara við hvössum vindstrengjum Allt að átján stigum og léttskýjað vestanlands Allt að sautján stigum og mildast á Suður- og Vesturlandi Sjá meira