Ótrúlegt ævintýri að raungerast á Íslendingaslóðum Aron Guðmundsson skrifar 4. apríl 2026 23:15 Frá leik Íslands og Finnlands á Stockhorn leikvanginum í Thun á EM í fyrra. Vísir/Getty Það þarf mikið að gerast svo FC Thun standi ekki uppi sem svissneskur meistari í fótbolta og það sem nýliði í efstu deild Sviss þetta tímabilið. Liðið spilar á Stockhorn leikvanginum sem hýsti íslenska kvennalandsliðið á EM síðasta sumar meðal annars.
FC Thun er að takast eitthvað sem enginn hafði trú á og mætti kalla vegferð iðsins í efstu deild þetta tímabilið algjört ævintýri. Liðið er sem stendur á toppi svissnesku úrvalsdeildarinnar með mjög gott forskot þegar að 32 umferðir hafa verið leiknar. Þar er liðið að skjóta stórliðum á borð við Basel, Young Boys og St.Gallen ref fyrir rass og þarf eitthvað mikið að gerast til þess að titillinn endi ekki hjá Thun. Í augsýn er fyrsti stóri titill félagsins í 128 ára sögu þess. Bærinn Thun er með íbúafjölda upp á rúm 45 þúsund einstaklinga og þar spilaði íslenska kvennalandsliðið tvo af þremur leikjum sínum í riðlakeppni Evrópumóts landsliða síðasta sumar. Árangur Thun enn merkilegri fyrir þær sakir að liðið er nýliði í efstu deild eftir að hafa borið sigur úr býtum í næstefstu deild á síðasta tímabili. Þetta yrði besti árangur liðsins í efstu deild síðan tímabilið 2004-2005 þegar að annað sætið var niðurstaðan og fór Thun í kjölfarið í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu þar sem liðið var ekki langt frá því að stela stigi af Arsenal á Highbury. Síðustu ár hafa ekki verið gjöful fyrir liðið og miklir erfiðleikar steðjað að en tekist hefur að rétta úr kútnum allverulega og er eitt skemmtilegasta ævintýri fótboltans skrifaði í Thun um þessar mundir.
Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Dagskráin: Lokaumferð Bestu með Doc Zone og Messan í einum pakka Sport Heims- og Ólympíumeistari í maraþoni féll á lyfjaprófi Sport Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport Gylfi valinn besti leikmaður ársins Íslenski boltinn „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Fótbolti Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Fleiri fréttir Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Nýbúin að vera valin best á Íslandi og skoraði tvö mörk í Svíþjóð Lagði upp jöfnunarmark á sama tíma og hann missti markametið Andri Lucas skoraði tvö mörk í sigri á Hollywood-liðinu Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Emelía skoraði tvennu í mikilvægum sigri Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni Aston Villa - Manchester City 2-1 | Fyrstu töpuðu stig City í deildinni Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“