„Algjörlega nauðsynlegt að fá framherja“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. apríl 2026 10:03 Á ýmsu gekk hjá Breiðabliki á síðasta tímabili. vísir/diego Halldór Árnason, sérfræðingur Stúkunnar, segir snúið að meta hver staðan á Breiðabliki, liðinu sem hann gerði að Íslandsmeisturum 2024, sé á þessari stundu. Hann segir leikmannahóp Blika sterkan þótt hann telji vanta framherja í hann.
Breiðabliki er spáð 2. sæti Bestu deildar karla í árlegri spá íþróttadeildar Vísis og Sýnar. Eftir að hafa orðið Íslandsmeistari 2024 var Breiðablik langt frá því að verja titilinn í fyrra. Liðið endaði í 4. sæti og missti af Evrópusæti. Blikar komust þó í riðlakeppni Sambandsdeildar Evrópu í annað sinn á þremur árum. Breiðablik lauk ekki keppni á síðasta tímabili fyrr en skömmu fyrir jól sem hefur sett mark sitt á undirbúning liðsins. „Það er auðvitað pínu erfitt að rýna í það ef maður horfir bara á veturinn. Breiðablik fór eðlilega seint og mjög hægt af stað og maður sér kannski lítið af því sem þeir ætla að gera,“ sagði Halldór er hann var beðinn um að rýna í lið Breiðabliks. Klippa: Besta-spáin 2026 - 2. sæti „En liðið er mjög vel mannað, mjög sterkur og breiður hópur, ótrúlega reynslumiklir og góðir leikmenn sem hafa gert þetta allt. Það eru ungir leikmenn sem eru að koma upp sem er ætlað mjög stórt hlutverk þannig að það verður mjög fróðlegt að sjá hvernig sú blanda verður. En maður áttar sig ekki alveg kannski á því hvar þeir standa akkúrat núna þannig að það verður bara gaman að sjá.“ Halldór segir að Breiðablik þurfi að styrkja sig meira til að geta barist um Íslandsmeistaratitilinn. „Ég held þeir þurfi framherja með Kristófer [Inga Kristinssyni]. Ég held að það sé algjörlega nauðsynlegt,“ sagði Halldór. Breiðablik sækir Íslandsmeistara Víkings heim í upphafsleik Bestu deildarinnar klukkan 19:15 í kvöld. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn Sport Ísland.
Besta deild karla Breiðablik Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Körfubolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Fleiri fréttir „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu Á sársaukafullar minningar af HM Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Jökull rekinn frá Stjörnunni Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Bestu-deildarpar á von á barni saman Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sjá meira