Handbolti

„Tel mig vera rosa­legan stemningskarl“

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Jón Þórarinn Þorsteinsson var heldur betur betri en enginn í marki FH-inga í kvöld.
Jón Þórarinn Þorsteinsson var heldur betur betri en enginn í marki FH-inga í kvöld. Vísir/Anton Brink

Jón Þórarinn Þorsteinsson átti stórleik í marki FH er liðið vann sex marka sigur gegn Haukum í fyrsta leik liðanna í undanúrslitaeinvígi Olís-deildar karla í handbolta í kvöld, 27-21.

Jón Þórarinn hóf leik á varamannabekk FH í kvöld, en kom inn af miklum krafti eftir að Daníel Freyr Andrésson náði ekki að finna fjölina í ramma FH-inga. Jón varði 13 skot í marki FH og endaði með 50 prósent hlutfallsmarkvörslu.

„Þetta var bara þarna síðasta korterið sem við byrjuðum að bæta í. En þetta voru 45 mínútur af alvöru hörku og við vorum undir alveg í smá tíma. Þetta var bara harkan sem tók þetta í dag,“ sagði Jón í viðtali eftir leik.

FH-ingar skoruðu fyrstu tvö mörk leiksins í kvöld, en átta af næstu tíu mörkum leiksins voru Hauka. Eftir það var stál í stál nánast allan leikinn, eða alveg þar til FH-ingar sigu fram úr í lokin.

„Ég vil segja að þetta hafi verið vörnin, sérstaklega hérna í lokin. Við þurftum aðeins að slípa okkur saman Vörnin var fín í fyrri hálfleik, en hún small rosalega vel í seinni hálfleik. Síðan byrjum við líka að koma í alvöru árásir og þetta endaði bara mjög vel.“

Þá segist hann kunna vel við sig í leik sem þessum, þar sem allt er undir í Hafnarfjarðarslag.

„Þetta er auðvitað bara frábært og geggjuð stemning. Ég tel mig vera rosalegan stemningskarl og það er alltaf gaman að fagna upp í stúku. Ég bara elska aðdáendur og sérstaklega þessa. Þetta er búið að vera frábær skemmtun og ég ætla bara að vona að það komi sem flestir á leikinn á föstudaginn þar sem við ætlum að reyna að halda þessu áfram og bæta aðeins meira í.“

En hvað þurfa FH-ingar að gera til að halda góðu gengi áfram á föstudaginn?

„Við þurfum að taka góða endurheimt núna og ná góðum æfingum fyrir næsta leik. Svo þurfum við bara að vera tilbúnir því þetta var bara leikur eitt og það er ennþá slatti eftir af þessu,“ sagði Jón að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×