Þrettán ár fyrir ítrekuð brot gegn stjúpdóttur Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 9. apríl 2026 18:54 Maðurinn féllst á bótaskyldu gagnvart stúlkunni en mótmælti fjárhæð kröfunnar, sem nam sex milljónum króna. Ekki var fallist á mótmælin. Vísir/Vilhelm Karlmaður hefur verið dæmdur til þrettán ára fangelsisvistar fyrir að hafa ítrekað beitt stjúpdóttur sína kynferðisofbeldi þegar hún var sex til níu ára gömul. Brotin framdi hann meðan hann sætti skilorðsbundnum fangelsisdómi fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn móður stúlkunnar.
Dómur þess efnis var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur á dögunum en málið var til umfjöllunar þegar maðurinn var ákærður fyrir brotin í janúar síðastliðnum. Maðurinn hlaut fimm ára fangelsisdóm fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn móður stúlkunnar fyrir tveimur árum en sat aldrei inni að sérstakri ósk móðurinnar. Talskona Stígamóta sagði að með dóminum fyrir tveimur árum hafi dómari ákveðið að leggja hagsmuni barnsins til hliðar. Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan í október og í janúar var greint frá því að hann hefði játað brot sín að mestu leyti. Í þessari frétt er fjallað um kynferðisbrot gegn barni. Varað er við lýsingum sem hér koma fram. Karlmaðurinn var ákærður fyrir stórfellt brot í nánu sambandi, nauðgun, tilraun til nauðgunar og kynferðisbrot gegn barni með því að hafa án samþykkis margítrekað haft önnur kynferðismök en samræði við stúlkuna, með því að beita hana ofbeldi og ólögmætri nauðung og með því að nýta sér yfirburði sína og traust hennar sem stjúpfaðir. Þá hafi hann notfært sér að stúlkan gat hvorki spornað við verknaðinum né skilið þýðingu hans vegna aldurs og eftir atvikum svefndrunga. Þá var hann ákærður fyrir að hafa ítrekað áreitt stúlkuna kynferðislega með kynferðislegu tali. Með háttseminni hafi hann ógnað lífi heilsu og velferð stúlkunnar á sérstaklega sársaukafullan, meiðandi og alvarlegan hátt. Sagði frá eftir fræðslumyndband í skóla Málsatvik eru þau að móðir stúlkunnar, þá sambýliskona mannsins, tilkynnti lögreglu í október 2025 að hann hefði beitt dóttur hennar kynferðisofbeldi um tveggja ára skeið. Hún sagði lögreglu að fyrr sama dag hefði stúlkan tjáð henni að maðurinn hefði ítrekað brotið á henni kynferðislega. Meðal annars hafi hún sagt að þegar móðirin væri ekki heima hefði maðurinn sett lim sinn upp í munn hennar. Þá hafi hún sagst vakna á nóttunni við að hann væri að gera það sama. Í samtali við lögreglumann eftir að maðurinn hafði verið fjarlægður af heimilinu og í skýrslutöku í Barnahúsi viku síðar lýsti hún fjölmörgum skiptum þar sem stjúpfaðir hennar braut alvarlega á henni eða áreitti. Aðspurð hvers vegna hún hefði ákveðið að segja móður sinni frá umrætt kvöld sagðist hún hafa fengið fræðslu í skólanum um einkastaði og fundið fyrir vanlíðan yfir því að hafa ekki sagt neinum frá. Vildi ekki tjá sig fyrst Í upphafi skýrslutöku hjá lögreglu daginn eftir að brotin voru tilkynnt sagðist maðurinn ekki vilja tjá sig um þau. Hann neitaði að hafa kynferðislegan áhuga á börnum og sagði hann einungis beinast að fullorðnum konum. Við lok skýrslutöku hafði hann þó játað að hafa beitt hana kynferðisofbeldi og áreitt í fjölda skipta. Fyrir dómi játaði maðurinn að hafa brotið gegn stúlkunni yfir tvö tímabil. Annars vegar frá vori 2023 og þar til hann brotnaði niður og bað stúlkuna afsökunar, og síðar frá hausti 2024 fram á vor eða sumar 2025. Á seinna tímabilinu hafi stúlkan verið sofandi þegar brotin voru framin. Aðspurður taldi hann heildarfjölda skipta á bilinu fjörutíu til 45. Refsing þyngd vegna máls móðurinnar Maðurinn játaði skýlaust í níu af þrettán ákæruliðum í héraðsdómi en gerði athugasemd við ferna og neitaði að hluta til sök í þeim liðum. Sem fyrr segir var maðurinn dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir fimm árum fyrir kynferðisbrot gegn móður stúlkunnar. Brotin sem um ræðir í máli stúlkunnar voru framin bæði fyrir og eftir dómsuppkvaðningu í því máli. Manninum var af því tilefni gerður hegningarauki að því er varðar tímabilið áður en dómurinn var kveðinn upp. Þá var litið til játninga mannsins við ákvörðun refsingar. Líkt og fyrr segir var maðurinn dæmdur til þrettán ára fangelsisvistar en frá því dregst óslitið gæsluvarðhald frá október í fyrra. Þá var hann dæmdur til að greiða stúlkunni sex milljónir króna í miskabætur en hann hafði mótmælt þeirri upphæð og talið hana of háa fyrir dómi. Á það féllst dómurinn ekki. Þá er tekið fram í dóminum að mikilvægt sé að við fullnustu refsingarinnar verði þess gætt að maðurinn fái viðeigandi heilbrigðisþjónustu.
Dómsmál Hafnarfjörður Ofbeldi gegn börnum Tengdar fréttir Játar að hafa brotið á stúlku í Hafnarfirði Karmaður sem hefur verið ákærður fyrir að nauðga stúlku, sem er yngri en fjórtán ára, í Hafnarfirði í október síðastliðnum hefur játað brot sín að mestu leyti. Maðurinn tengist stúlkunni fjölskylduböndum. Hann sætir nú gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna. 12. janúar 2026 11:42 Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Fleiri fréttir „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Sjá meira
Játar að hafa brotið á stúlku í Hafnarfirði Karmaður sem hefur verið ákærður fyrir að nauðga stúlku, sem er yngri en fjórtán ára, í Hafnarfirði í október síðastliðnum hefur játað brot sín að mestu leyti. Maðurinn tengist stúlkunni fjölskylduböndum. Hann sætir nú gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna. 12. janúar 2026 11:42