„Alls ekki áhyggjuefni“ Valur Páll Eiríksson skrifar 10. apríl 2026 15:17 Hermann Hreiðarsson stýrir Val í sumar. Mynd/Valur Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, segir tapleik við KR í Mjólkurbikarnum síðustu helgi munu reynast hans liði vel. Hann hefur ekki áhyggjur fyrir komandi átök í Bestu deildinni þrátt fyrir erfiðan vetur. „
Ég held þetta sé nokkuð eftir bókinni, þannig séð, ef tekið er inn veturinn, kaup hjá okkur miðað við önnur lið. Þá held ég að þetta sé á pari,“ segir Hermann um spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna í deildinni þar sem Valur er í sjötta sæti, eftir að hafa lent í öðru sæti deildarinnar í fyrra. Klippa: Hermann hefur ekki áhyggjur Menn hljóta að stefna hærra? „Að sjálfsögðu stefnum við hærra. Valur er risaklúbbur með frábæra leikmenn innanborðs og hefðin er bara þannig. Þó það sé aðeins búið að fara minna inn á leikmannamarkaðinn eru enn hörkugæði í klefanum,“ segir Hermann. Valur tapaði 4-2 fyrir KR í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins á mánudaginn var. Það tap hefði hæglega getað orðið stærra og virtist skorta orku í liði Valsmanna. Hermann hafði orð á því eftir leik að meiðsli hefðu verið slíkt í leikmannahópnum í vetur að liðið hefði vart getað spilað fyrr en í fyrsta sinn gegn KR. Að einhverju leyti sé liðið því langt á eftir öðrum hvað undirbúning varðar og að úrslit leiksins hefðu verið afrakstur meiðslahrjáðs vetrar. Er það áhyggjuefni? „Alls ekki áhyggjuefni. Við erum nánast búnir að vita þetta í allan vetur, en það er ekki ákjósanlegt. Þess vegna var þessi leikur risastór fyrir okkur, að fá alvöru leik þar sem flestir sem koma til með að vera með í sumar voru til staðar. Það var rosalega mikilvægt að fá leik á þessu tempoi og gæðum, KR frábært lið sem hefur spilað öflugan í fótbotla í vetur. Að geta aðeins borið sig saman við það sem koma skal,“ segir Hermann og bætir við: „En þetta er alls ekki áhyggjuefni, við höfum vitað af þessu, verðum með aðeins yngra lið, leikmenn sem við treystum 100 prósent og höfum verið með á æfingasvæðinu í vetur. Við erum ógnarspenntir fyrir því og það kemur alltaf maður í manns stað,“ segir Hermann. Þórsarar fyrsta verk Nýliðar Þórs frá Akureyri eru fyrsta verkefni Valsmanna í deildinni en þeir sækja Hlíðarenda heim á sunnudag. „Við vitum það alveg að fyrsti leikur, hvort sem þú sért nýliði eða ekki, er alltaf rosa spenna þegar þetta er að keyrast í gang. Þetta er virkilega öflugur mótherji sem við fáum á okkar heimavöll, það er gott að byrja heima og við fögnum því. Annars hafa liðin styrkt sig þannig í heildina að það er ekkert gefið. Það verða engir léttir og einfaldir leikir í sumar. Þór er með hörku mannskap og hörkulið. Við erum að fara að mæta alvöru liði,“ segir Hermann. Leikur Vals og Þór er klukkan 17:00 á sunnudag. Fyrsta umferð Bestu deildarinnar á Sýn Sport Föstudagur 10. apríl 19:15 Víkingur R. - Breiðablik (Sýn Sport Ísland) Sunnudagur 12. apríl 13:00 ÍBV - FH (Sýn Sport Ísland) 16:45 Besta messan (Sýn Sport Ísland) 17:00 KR - Keflavík (Sýn Sport Ísland 2) 17:00 Valur - Þór (Sýn Sport Ísland 4) 17:00 KA - Stjarnan (Sýn Sport Ísland 5) 21:35 Stúkan (Sýn Sport Ísland)
Valur Besta deild karla Mest lesið „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Enski boltinn Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Íslenski boltinn Sara Björk kveður Sádi-Arabíu Fótbolti Barcelona Evrópumeistari Fótbolti Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Enski boltinn „Allir tilbúnir að hrauna yfir þjálfarann“ Íslenski boltinn Skikkaðir í einangrun fram að HM Fótbolti Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Íslenski boltinn Haukur mikilvægari en Gidsel Handbolti Benítez rekinn eftir 40 leiki Fótbolti Fleiri fréttir Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Uppgjörið: Breiðablik - KR 6-3 | Kennslustund í Kópavogi „Við réðum ekkert við þá“ „Þetta small saman í kvöld“ Afturelding við hlið Þróttar á toppnum eftir mikinn markaleik „Sérstaklega sætt að vinna hér á KA vellinum“ Uppgjörið: Stjarnan - Fram 0-1 | Sigurmark Róberts færir Fram nær toppnum Víkingur R. - FH 5-0 | Markaveisla í Víkinni Keflavík - Þór 1-0 | Baráttusigur í nýliðaslagnum KA - Valur 0-1 | Valsmenn stöðvuðu sigurgöngu KA Allur ágóði tónleika Loga til Ingvars Sjáðu glæsimörk Gíslanna og endurkomu Eyjamanna „Allir tilbúnir að hrauna yfir þjálfarann“ „Leið aldrei eins og við værum að sigla þessu heim“ Fékk að vita af skiptunum klukkan tvö í gær Úlfur Ágúst sleit liðband ÍA – ÍBV 2-2 | Frábær endurkoma Eyjamanna í jafntefli á Skaganum Sláarkeppni milli Þórdísar og Mistar Sáttur eftir skrýtna daga: „Auðvitað er þetta truflandi“ „Sérstaklega þegar þjálfarinn er ekki uppbyggilegri en þetta“ Sjáðu öll mörkin: Hrafnhildur Ása og Sigríður í ham ÍA fékk að kaupa markvörð og Jón Sölvi snýr aftur „Við erum í nútímalýðræðisfélagi“ „Hefðu átt að vera stærri úrslit“ Grindavík/Njarðvík - Stjarnan 1-1 | Afmælisbarnið Ingibjörg bjargaði stigi fyrir Stjörnuna Víkingur R. - Þróttur R. 1-4 | Sigríður á skotskónum í öruggum sigri Þór/KA - Breiðablik 1-3 | Blikar styrktu stöðu sína á toppnum Valur - Fram 0-0 | Bragðlaus leikur á Hlíðarenda Sjá meira