Gabbana stígur til hliðar hjá Dolce & Gabbana Magnús Jochum Pálsson skrifar 10. apríl 2026 11:21 Stefano Gabbana ætlar að einbeita sér að hönnun hjá Dolce & Gabbana og leyfa öðrum að sjá um stjórnarformennskuna. Getty Stefano Gabbana, tískuhönnuður og annar stofnenda Dolce & Gabbana, hefur sagt af sér sem stjórnarformaður tískuhússins sem hann stofnaði með Domenico Dolce. Hann verður áfram í hönnunarhlutverki hjá fyrirtækinu.
Fyrirtækið greindi frá fregnunum í tilkynningu en þar kemur fram að uppsögn Gabbana hafi tekið gildi 1. janúar. Breytingunni er lýst í tilkynningu sem „náttúrulegri þróun á stofnunar- og stjórnunarbyggingu“ Dolce & Gabbana. Samkvæmt umfjöllun Bloomberg, sem greindu fyrst frá málinu, tók Alfonso Dolce, bróðir Domenicos og núverandi forstjóri fyrirtækisins, við stöðunni í janúar. Domenic og Stefano heilsa upp á Madonnu sem hefur veitt þeim mikinn innblástur í gegnum tíðina.Getty Gabbana mun halda áfram í hönnunarhlutverki hjá fyrirtækinu en er sagður íhuga sölu á fjörutíu prósenta hlut sínum í fyrirtækinu í aðdraganda viðræðna við lánadrottna fyrirtækisins en það hefur safnað skuldum upp á mörg hundruð milljónir evra. Síðast sást til Gabbana þar sem hann var viðstaddur tískusýningu D&G í febrúar þar sem músa þeirra félaga, Madonna, sat á fremsta bekk. Hönnuðurnir Dolce og Gabbana stofnuðu tískuhúsið árið 1985 í Legnano og sýndu fyrstu flíkur þess á tískusýningum í Mílanó sama ár. Vinsældir tískufyrirtækisins jukust gríðarlega á tíunda áratugnum en fatnaður D&G einkennist af sikileyskum áhrifum, svörtum blúndum og maximalisma. Fyrirtækið hefur víkkað út starfsemi sína til ilmvatna, heimilisvara og úra auk annarra fylgihluta. Árið 1999 greindu Dolce og Gabbana frá því að þeir væru ekki aðeins viðskiptafélagar heldur einnig par en sambandi þeirra lauk svo árið 2004.
Tímamót Ítalía Vistaskipti Tengdar fréttir Dolce og Gabbana fundnir seki Dolce og Gabbana voru í dag dæmdir í 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi í réttarsal í Mílanó. 30. apríl 2014 21:00 Dolce og Gabbana fundnir sekir Dolce og Gabbana voru í dag dæmdir í 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi í réttarsal í Mílanó. 30. apríl 2014 21:00 Skapandi samstarf Þótt Dolce & Gabbana hafi slitið sambandi sínu í einkalífinu heldur samstarf þeirra áfram. 17. mars 2005 00:01 Mest lesið Tónlistariðnaðurinn mikið til „klám og rúnk“ Menning Ari Edwald og Ingibjörg keyptu súkkulaðihöllina Lífið Vignir Vatnar opnar sig um sjálfsvígshugsanir Lífið Fyrrverandi þingmaður selur í Laugardalnum Lífið Þurfti hjálp við að anda og lítið var um svör Lífið Eyþór og Ástríður eignuðust lítinn Arnalds Lífið Hvað veistu um... flugvelli? Lífið Nítján ára þegar Óskarsverðlaunahafi sýndi henni punginn Bíó og sjónvarp Ívar Halldórs var týndi sonur Jóhanns G. Jóhannssonar Lífið Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Lífið samstarf Fleiri fréttir Minnist föður síns með verðmætu verkefni Aðalpæjur landsins komu saman Dreifði ættjarðarástinni til London og Parísar Gellur elska hönnun Tíundi bekkur slys í heild sinni Fimmhundruð manns í örlagaríku teiti Gusugleði í Vesturbæjarlaug Mikil hvatning ef fólk hlær að fötunum Þessi sigruðu Met Gala Met Gala-bölvunin alræmda Hittu sjálfan Jacquemus í New York Gjörningar og gleði á HönnunarMars Myndaveisla: Sjóðheit tískusýning í Hörpu Innsýn í heim fatahönnuða framtíðarinnar Týndi strax 120 þúsund króna sokkum Varð að vera flottastur í eigin teiti „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Gabbana stígur til hliðar hjá Dolce & Gabbana Euphoria stjörnurnar gáfu ekkert eftir Kröfuharður og með öll smáatriði á lás Sjá meira
Dolce og Gabbana fundnir seki Dolce og Gabbana voru í dag dæmdir í 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi í réttarsal í Mílanó. 30. apríl 2014 21:00
Dolce og Gabbana fundnir sekir Dolce og Gabbana voru í dag dæmdir í 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi í réttarsal í Mílanó. 30. apríl 2014 21:00
Skapandi samstarf Þótt Dolce & Gabbana hafi slitið sambandi sínu í einkalífinu heldur samstarf þeirra áfram. 17. mars 2005 00:01