Snorri og Arnór eftirsóttir: Áhugi erlendis frá en HSÍ enn í forgangi Aron Guðmundsson skrifar 13. apríl 2026 11:57 Íslenska landsliðið hefur verið á góðri siglingu undir stjórn Snorra Steins Guðjónssonar og Arnórs Atlasonar. Gott starf þeirra hefur ekki farið fram hjá félags- og landsliðum erlendis frá. vísir/Vilhelm Áhugi hefur verið erlendis frá á bæði Snorra Steini Guðjónssyni, landsliðsþjálfara íslenska karlalandsliðsins í handbolta og aðstoðarþjálfara hans Arnóri Atlasyni. Samningar þeirra við HSÍ eru að renna sitt skeið en umboðsmaður tvímenninganna segir viðræður um framhald á samstarfinu ganga vel. „
Það gengur mjög vel,“ segir Arnar Freyr Theodórsson, umboðsmaður Snorra Steins og Arnórs Atlasonar í samtali við Vísi en Snorri Steinn hefur áður lýst yfir vilja sínum gagnvart því að halda áfram með íslenska landsliðið. Fjárhagsstaða HSÍ, sem og mikið af verkefnum hjá fáliðaðri skrifstofu sambandsins, hafi þó gert viðræðurnar langdregnari enn menn vildu en bjartsýni ríkir hjá báðum gagnvart því að samningar náist. Undir stjórn Snorra Steins og Arnórs hefur íslenska landsliðið tekið framfaraskref á hverju stórmóti sem liðið hefur tekið þátt í og var niðurstaðan nú á EM nú í upphafi árs fjórða sætið eftir tap gegn Króötum í leik um bronsverðlaun. Vefsíðan Handkastið greindi frá því í upphafi mánaðar að Nicolaj Jacobsen, landsliðsþjálfari Danmerkur, hefði hug á því að fá Arnór sem aðstoðarþjálfara sinn. Áhugi annarra liða hefur verið víðtækari en svo og ekki eingöngu bundinn við Arnór. „Það hefur verið áhugi erlendis frá á bæði Snorra og Arnóri,“ segir Arnar Freyr. Aðspurður hvort áhuginn sé bundinn við lands- eða félagslið segir Arnar að bæði félagslið og landslið erlendis frá hafi spurt út í stöðuna hjá bæði Snorra Steini og Arnóri sem er einnig aðalþjálfari danska úrvalsdeildarfélagsins TTH Holstebro. Viljinn til staðar Tónninn í Arnari Frey gagnvart viðræðunum er jákvæður og að mörgu leiti sambærilegur þeim hjá Jóni Halldórssyni, formanni HSÍ, sem ræddi við Vísi í upphafi mánaðarins um viðræðurnar. Það virðist bæði forgangsmál hjá Snorra sem og Arnóri að halda vegferð sinni með íslenska landsliðið áfram. Góður taktur hefur verið í liðinu og mikinn hug má greina í leikmönnum landsliðsins gagnvart framhaldinu. „Þig langar í meira. Það spilar saman með því sem hefur verið að gerast í landsliðinu. Við finnum það þar að við erum að nálgast eitthvað stórt,“ sagði Janus Daði Smárason, landsliðsmaður í samtali við Vísi undir lok mars eftir að hafa skrifað undir samning hjá stórliði Barcelona.
Landslið karla í handbolta HSÍ Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira