Handbolti

Sópurinn aftur inn í skáp hjá bæði Birgi Steini og Einari Braga

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Arnór Viðarsson stóð sig vel með Karlskrona í kvöld.
Arnór Viðarsson stóð sig vel með Karlskrona í kvöld. FHK

Tvenn Íslendingalið áttu möguleika á því að tryggja sér sæti í undanúrslitum sænska handboltans í kvöld en tókst ekki að sópa mótherjum sínum í sumarfrí.

Sävehof var 2-0 yfir á móti Hammarby en tapaði 30-29 á útivelli. Þrjá sigra þarf til að komast í undanúrslitin.

Birgir Steinn Jónsson náði ekki að skora úr einu af þremur skotum sínum en átti tvær stoðsendingar.

Einar Bragi Aðalsteinsson og félagar hans í Kristianstad gátu sópað Karlskrona í sumarfrí með sigri á heimavelli en töpuðu leiknum með fjórum mörkum, 30-34.

Einar Bragi nýtti eina skotið sitt og var einnig með eina stoðsendingu.

Arnór Viðarsson skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum og átti einnig tvær stoðsendingar. Hann fiskaði mikilvægt vítakast á lokamínútum leiksins.

Staðan er því 2-1 í báðum einvígum og leikur fjögur næst á dagskrá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×