Vignir Vatnar einn á toppnum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. apríl 2026 20:54 Vignir Vatnar hefur unnið fimm skákir og gert eitt jafntefli. Er nema furða að keppinautarnir séu þungt hugsi og reiti jafnvel hár sitt. Gunnar Björnsson Stórmeistarinn ungi, Vignir Vatnar Stefánsson, er einn efstur á Evrópumóti einstaklinga í Katowice í Póllandi þegar mótið er rúmlega hálfnað. Um er að ræða gríðarlega sterkt mót þar sem 500 keppendur taka þátt, þar af margir af öflugustu skákmeisturum heims.
Alls hafa sex umferðir verið tefldar í mótinu af ellefu alls og er Vignir Vatnar eini keppandinn sem hefur önglað saman 5,5 vinningum af 6 mögulegum. Það er ótrúlegur árangur, ekki síst í ljósi þess að íslenski stórmeistarinn ungi var 74. í styrkleikaröð mótsins þegar það hófst. Í sjöttu umferð sem fram fór fyrr í dag lagði Vignir Vatnar ítalska stórmeistarann Lorenzo Lodici með svörtu mönnunum eftir harða baráttu. Í nýbirtri frétt á skak.is er farið yfir skákina glæsilegu í ítarlegu máli. Í umferðinni á undan hafði Vignir svo lagt serbneska stórmeistarann Aleksandar Indjic að velli sem þóttu talsverð tíðindi á mótsstað enda Indjic í hópi sterkustu skákmanna heims og landaði sjálfum Evrópumeistaratitlinum árið 2024 með fáheyrðum yfirburðum. Að neðan má sjá viðtal við Vigni Vatna ytra eftir þann sigur sem vakti mikla athygli. „Það er náttúrulega bara frábær tilfinning þegar vel gengur og mikilvægt að njóta þess í botn. En að sama skapi þá er mikið eftir af mótinu og mikilvægt að halda sér á jörðinni,“ segir Vignir Vatnar í samtali við Vísi. Hann var þá á leiðinni í líkamsrækt hótelsins sem hann dvelur á sem hann segir að sé ófrávíkjanleg skylda eftir hverja skák. Þaðan verður förinni heitið í saunu hótelsins ásamt reynsluboltanum og stórmeistaranum Hannesi Hlífari Stefánssyni sem einnig tekur þátt í mótinu og er ofarlega með fjóra vinninga af sex mögulegum. Vignir Vatnar hefur ærna ástæðu til að brosa út að eyrum.Vísir/Einar „Við förum yfir stöðuna þar. Hannes Hlífar hefur upplifað allt sem hægt er að upplifa í skákinni og lumar eflaust á einhverjum ráðum,“ segir Vignir fullur tilhlökkunar fyrir næstum dögum. Á morgun bíður hans erfitt verkefni en það er viðureign gegn sterkasta stórmeistara Spánar, David Anton Guijarro, sem er næst stigahæsti skákmaður mótsins. Skákin hefst klukkan 13.00 á morgun og verður hægt að fylgjast með henni í beinni útsendingu á Youtube-síðu Evrópumótsins sem og í gegnum skak.is.
Skák Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Fleiri fréttir „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Liverpool með fjögurra marka endurkomu Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Sjá meira