Langur samningur og krafan er skýr Aron Guðmundsson skrifar 15. apríl 2026 10:00 Jón Halldórsson, formaður HSÍ er himinlifandi með að hafa landað samningum við þjálfarateymi A-landsliðs karla í handbolta Vísir/Samsett Formaður HSÍ er mjög sáttur með að hafa framlengt samninga við Snorra Stein Guðjónsson og Arnór Atlason, þjálfarateymi íslenska karlalandsliðsins í handbolta til ársins 2032. Krafan frá sambandinu er skýr varðandi þetta samstarf. „
Ég er mjög sáttur og við öll sem komum að þessari ráðningu,“ segir Jón Halldórsson, formaður HSÍ. „Við vildum semja til lengri tíma. Búa til ákveðið jafnvægi í kringum landsliðið okkar, horfa til lengri tíma. Við erum mjög sátt. Bæði með lengd samningsins sem og þjálfarateymið okkar sem hefur staðið sig frábærlega.“ Viðræðurnar hafi ekki reynst erfiðar. „Alls ekki erfiðar og við strönduðum ekki á neinu. En það voru fullt af hlutum sem við vildum ræða. Þegar að maður gerir svona langan samning þá þarf maður að reyna að horfa fram í tímann og sjá hvað gæti komið upp. Viðræðurnar snerust að langmestu leiti að þessum faglega þætti. Þar sem það var vilji frá öllum aðilum að halda samstarfinu áfram þá vorum við ekkert endilega að drífa okkur. Vildum frekar vanda til verka og skila þessum góða samningi fyrir HSÍ og fyrir þjálfarana að lokum.“ Heiður númer eitt, tvö og þrjú Rætt hefur verið um áhuga erlendis frá á kröftum bæði Snorra og Arnórs frá félags- og landsliðum. Jón hafði hins vegar ekki áhyggjur af því að öðrum tækist að lokka þjálfarana af landi brott. „Ég hafði ekki áhyggjur en auðvitað er það þannig þegar að það næst árangur þá verða þjálfararnir vinsælli. Við sjáum það á umræðunni sem fór á kreik fyrir tveimur vikum varðandi danska landsliðið og Arnór. Það er nú kannski bara heiður fyrir okkur númer eitt, tvö og þrjú að það sé sóst í þjálfarana okkar. Það góða við þetta er að við vorum allir með heilan hug við það að íslenska landsliðið væri í forgrunni. Þeir vilja þjálfa íslenska landsliðið. Finnst það heiður. Það er bara gott, þannig viljum við hafa það.“ Krafan frá HSÍ í garð Snorra sé að skila medalíu í hús. „Það er skýr krafa. Algjörlega skýr krafa að við viljum ná árangri. Við erum með frábært lið. Ætlum okkur að vera keppa við bestu lið í heimi. Medalía er eitthvað sem okkur langar í.“
Landslið karla í handbolta HSÍ Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Fleiri fréttir Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús Sjá meira