„Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. apríl 2026 22:31 Michael Olise og Luis Diaz tryggðu Bayern München sigur á Real Madrid með tveimur mörkum undir lokin. Getty/Chris Brunskill Nokkrir stuðningsmenn Bayern München fóru yfir girðingar í kringum völlinn eftir sigurmarkið gegn Real Madrid á miðvikudagskvöldið. Í hamaganginum slösuðust nokkrir ljósmyndarar.
Fréttastofan AFP skrifar að um sé að ræða einstaklinga úr einum þekktasta stuðningsmannahópi Bayern. Nokkrir ljósmyndarar hafa tjáð sig bæði á samfélagsmiðlum og við AFP eftir Meistaradeildarleikinn á miðvikudag. Þar var staðan 4-4 samanlagt þegar Luis Diaz skoraði á síðustu mínútu venjulegs leiktíma. Það fékk stuðningsmennina til að missa stjórn á sér. Nokkrum ljósmyndurum var í kjölfarið troðið niður og þeim hrint um koll. Einn ljósmyndaranna, Kai Pfaffenbach, starfar fyrir Reuters og tjáði sig um atvikið á samfélagsmiðlum. „Til allra sem spyrja, þá er ég í lagi. Ég fékk nokkrar skrámur en ekkert er brotið. En ein spurning stendur eftir: Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ skrifar hann. Annar ljósmyndari telur að öryggisverðir hafi gripið of seint inn í. Knattspyrnusamband Evrópu upplýsir AFP um að það sé meðvitað um atvikið. AFP hefur haft samband við stuðningsmannahópinn Club Nr. 12. „Okkur þykir leitt vegna meiðsla sem ljósmyndararnir urðu fyrir. Eftir því sem við best vitum hefur þegar verið haft samband milli félagsins og nokkurra þeirra sem áttu hlut að máli og þeir hafa beðist afsökunar á atvikinu,“ segir í yfirlýsingu frá stuðningsmönnunum. Bayern mætir Paris Saint-Germain í undanúrslitum.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Real Madrid CF Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Enski boltinn Arteta mjög hissa á ummælum Jesus Enski boltinn „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fótbolti Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport Nýja brautin í Madrid toppi Mónakó Formúla 1 Fleiri fréttir Breiðablik - Afturelding | Hvort liðið endar sem bikarmeistari? Markasúpa í Noregi Spenntur að sjá rauða hafið í stúkunni Meðvitaðir um pressuna Hvolfdi bílnum á leið á æfingu Arteta mjög hissa á ummælum Jesus „Hljóta allir að sjá á hverjum pressan er í þessum leik“ Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Róbert Frosti með slitið krossband og á leið í aðgerð Sjáðu markaveislur United og Bayern München Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Sjá meira