„Hann var grátandi í hálfleik“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. apríl 2026 22:02 Estevao liggur meiddur á vellinum en hann gerði sér strax grein fyrir að þetta væri alvarleg tognun. Getty/Julian Finney Liam Rosenior, knattspyrnustjóri Chelsea, sagði frá því að Brasilíumaðurinn Estevao hefði verið í tárum í hálfleik eftir að hafa neyðst til að fara af velli vegna meiðsla snemma í tapi liðsins gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni á laugardagskvöldið.
Brasilíski framherjinn var aðeins inni á vellinum fyrstu sextán mínúturnar áður en Rosenior neyddist til að taka hann af velli vegna meiðsla aftan í læri. Rosenior dró ekki úr áhyggjum af alvarleika meiðsla Estevao eftir leikinn „Hann var grátandi í hálfleik; þetta var virkilega hrikalegt fyrir hann,“ sagði Liam Rosenior. 🚨⚠️ Liam Rosenior: “Estêvão was devastated… he was crying at half time”.“It looks like another hamstring injury”. pic.twitter.com/Ui0caZDkqd— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) April 19, 2026 Hinn átján ára gamli Estevao er í harðri baráttu um sæti í heimsmeistarahópi Brasilíu í sumar en þessi meiðsli gætu vissulega sett þar strik í reikninginn. Hann hefur skorað fimm mörk í fyrstu ellefu landsleikjum sínum. „Það lítur út fyrir að þetta sé aftan í læri og það gerðist á augnabliki þegar hann er að spretta í gegn að marki þeirra í einn á einn færi – hann tognar aftan í læri á því augnabliki. Ég vona að Este komi til baka fyrr en síðar,“ sagði Rosenior. Meiðslavandræði Chelsea enduðu ekki þar því miðjumaðurinn Enzo Fernández, sem var nýkominn aftur í hópinn eftir þvingaða pásu vegna ummæla sinna um möguleg félagaskipti til Real Madrid, neyddist einnig til að fara af velli seint í leiknum. „Ég sá hann [Fernandez] rétt í þessu í búningsklefanum – ég held að þetta hafi verið kálfinn,“ bætti Rosenior við. „Ég vona að þetta sé krampi; það er verið að vinna í því núna því við viljum augljóslega að hann verði klár fyrir þriðjudaginn [gegn Brighton and Hove Albion],“ sagði Rosenior. „Hann lagði sig allan fram fyrir félagið í kvöld og ég býst ekki við neinu öðru frá manni af hans kalíberi og gæðum,“ sagði Rosenior. An early injury to Chelsea's Estêvão sees him replaced by former Manchester Utd man Alejandro Garnacho 🔄📺 TNT Sports and HBO Max pic.twitter.com/0ekSfIkLbp— Football on TNT Sports (@footballontnt) April 18, 2026
Enski boltinn Chelsea FC Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Sjá meira