„Ég er bara í skýjunum með að hafa unnið hann“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. apríl 2026 18:13 Íslenski stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson tryggði sér í dag sæti á Heimsbikarmótinu í skák. Vísir/Sigurjón Íslenski stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson var sáttur eftir frábæran sigur á Ísraelanum Maxim Rodhstein í dag í lokaumferð Evrópumóts einstaklinga í Katowice í Póllandi. „
Ég er bara í skýjunum með þetta. Ég vissi fyrirfram að ég þyrfti að vinna Rodhstein,“ sagði Vignir Vatnar þegar Vísir heyrði í honum hljóðið í kvöld. Andstæðingurinn var öflugur. „Hann hefur verið atvinnumaður í um tuttugu ár og er alltaf á topp fimmtíu í heiminum. Þannig að þetta var erfitt verkefni sem ég stóð frammi fyrir og ég er bara í skýjunum með að hafa unnið hann,“ sagði Vignir. Vignir þurfti að enda inn á topp tuttugu til að tryggja sér þátttökurétt á Heimsbikarmótinu sem er eitt vinsælasta skákmótið í heiminum og stórt takmark fyrir skákmenn. Sigur hans tryggði honum farseðilinn þangað. „Já, þetta er öruggt,“ sagði Vignir sem vissi ekki alveg hvar hann endaði enda eiga aðrir skákmenn eftir að klára sínar skákir í dag. Þetta er stórt takmark fyrir hann. Djúsí og ég get ekki beðið „Já, það er náttúrulega bara djúsí og ég get ekki beðið,“ sagði Vignir en hann þarf samt að bíða aðeins því þetta heimsbikarmót er á tveggja ára fresti og verður ekki fyrr en árið 2027. „Bara með því að komast þangað, þá veistu að þú ert að gera eitthvað rétt,“ sagði Vignir en það hefur gengið á ýmsu á mótinu. „Þetta var náttúrulega smá rússíbani. Ég var með fimm og hálfan vinning af sex og var þá efstur í mótinu. Síðan koma tvær tapskákir í röð, sem er náttúrulega leiðinlegt og maður þurfti einhvern veginn að koma sér upp úr því,“ sagði Vignir. Að performa á við ofurstórmeistarana „Sem betur fer tókst það og ég náttúrulega endaði með átta vinninga af ellefu mögulegum og ég er bara að performa á við ofurstórmeistarana. Þannig að þú veist, ég get ekki búist við meiru,“ sagði Vignir sáttur með framgöngu sína á mótinu. „Þetta er einhvers staðar ofarlega á listanum yfir mín skákafrek. Þetta er mjög stórt og ég held ég sé að enda í fimmta til sjötta sæti. Þannig að maður er bara ógeðslega ánægður með þetta,“ sagði Vignir sem þakkar undirbúningnum og forminu fyrir sigurinn í lokaskákinni. Ég var bara rétt að byrja „Það kom upp á borðið sem ég var að skoða í gær með aðstoðarmanni mínum. Þannig að það hjálpaði mikið til. Við vorum báðir komnir í dálítið tímahrak en ég bara meira á tánum,“ sagði Vignir sem tekur undir það að gott líkamlegt og andlegt form hafi hjálpað honum í dag. „Við vorum búnir að tefla í fjóra tíma og ég var bara rétt að byrja. Ég var bara svo glaður með þetta og þetta var mikilvægur sigur,“ sagði Vignir.
Skák Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Fleiri fréttir Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Liverpool með fjögurra marka endurkomu Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Sjá meira