„Góð auglýsing fyrir ensku úrvalsdeildina“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. apríl 2026 18:52 Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, fagnar hér sigrinum á Arsenal í dag með stuðningsmönnum félagsins. Getty/Michael Regan Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, er enn á ný með liðið sitt á mikilli siglingu á lokaspretti ensku úrvalsdeildarinnar og getur nú komið því á toppinn með sigri á Burnley í vikunni.
City vann 2-1 sigur á Arsenal í toppslagnum í dag og minnkaði forskot Arsenal niður í þrjú stig. „Þetta var góð auglýsing fyrir ensku úrvalsdeildina,“ sagði Pep Guardiola og hrósaði Arsenal-mönnum. „Þeir leyfa manni ekki að fara í gegnum ferlið, þeir eru svo ákveðnir. Þeir eru góðir í einvígjum og eitt af samkeppnishæfustu liðum sem ég hef mætt á ferlinum hvað varðar einvígi og einn á einn, langar sendingar með Havertz og Rice, og í baráttunni um annan boltann, þeir eru frábærir,“ sagði Guardiola. „Við áttum okkar kafla, þeir áttu sína kafla, við fengum færi, þeir fengu færi. Í lokin í svona leikjum eru það litlu smáatriðin sem skipta máli,“ sagði Guardiola sem var spurður út í góð gæði í leiknum. „Algjörlega, bæði lið eru góð – virkilega framúrskarandi stjórar! Og virkilega framúrskarandi leikmenn beggja vegna,“ sagði Guardiola. „Ég hef gert miklar kröfur en raunveruleikinn er sá að þetta er bara einn leikur. Þeir eru á toppi deildarinnar með eins marks mun [betri en City]. Við verðum að njóta þess, fagna því, taka það góða með okkur en ekki missa einbeitinguna. Einbeitingin er á næsta leik eftir þrjá daga, þegar við förum til Burnley,“ sagði Guardiola. Guardiola var spurður út í breytingar hjá Arsenal frá deildarbikarúrslitaleiknum þar sem City vann mun meira sannfærandi. „Kannski spiluðu þeir beinskeyttar en á Wembley. Við þekkjum hraðann sem þeir hafa og föstu leikatriðin. Þegar við gefum mikið af hornspyrnum og aukaspyrnum eru þeir frábærir. Þeir voru með fjóra eða fimm framherja og Gabriel í lokin, og góðar sendingar líka,“ sagði Guardiola. „Stundum er erfitt að stjórna því vegna þess að við erum þreyttir. Í lokin er ég ánægður því við getum framlengt vonina og, kannski allt til enda, munum við reyna við titilinn,“ sagði Guardiola.
Enski boltinn Manchester City Arsenal FC Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Enski boltinn Falko farinn frá ÍR Körfubolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Sjá meira