#ÉGLOFA að láta ekki allt brenna til kaldra kola Alfa Jóhannsdóttir skrifar 22. apríl 2026 08:21 Ofbeldi gegn börnum er ógeðslegt. Það er líka óþægilegt og erfitt. Það er erfitt að tala um að fólk beiti börn ofbeldi. Við þurfum hins vegar að horfast í augu við það að ofbeldi er ein helsta ógn sem steðjar að börnum á Íslandi. Til að setja þetta í samhengi má benda á að samkvæmt gögnum lögreglunnar um brotaþola kynferðisbrota voru börn yngri en 18 ára 46% þolenda í öllum kynferðisbrotum árið 2025. Það er nærri helmingur tilkynntra brota. Það er líka því miður þannig að of mörg börn verða fyrir kynferðisofbeldi og of fá segja frá. Því er mikilvægt að taka þessum tölum með þeim fyrirvara að það eru enn þá alltof mörg börn á Íslandi sem finnast hvergi í tilkynningum. Það eitt og sér undirstrikar hversu mikilvægar ofbeldisforvarnir eru. Forvarnir gegn kynferðisofbeldi gagnvart börnum skipta öllu máli vegna þess að þær snúast ekki bara um það sem við gerum eftir að barn hefur orðið fyrir ofbeldi, heldur um það sem við gerum til að koma í veg fyrir að ofbeldið eigi sér stað. Ofbeldi gegn börnum er nefnilega ekki náttúrulegur hluti þess að búa í samfélagi, það er ekki náttúrulögmál sem er ritað í stein og við megum ekki nálgast það þannig. Samfélög geta dregið úr áhættu á ofbeldi með markvissum, samræmdum aðgerðum. Við tölum samt alltof oft um þessi mál eins og þau verði til í lausu lofti um leið og barn segir frá ofbeldi sem það varð fyrir. Viðbrögð við ofbeldi skipta auðvitað miklu máli, en þau duga ekki ein og sér. Forvarnir byrja miklu fyrr. Forvarnir snúast um að búa til aðstæður þar sem ofbeldi fær ekki svigrúm til að festa rætur og þróast. Þær snúast um skýr mörk, þekkingu, eftirlit, viðbragðsgetu og menningu þar sem fullorðið fólk tekur ábyrgð sína alvarlega. Árangur forvarna næst helst þegar samfélagið allt vinnur á mörgum vígstöðvum í einu. Okkur hættir líka stundum til að tala um forvarnir eins og börn eigi sjálf að verja sig gegn ofbeldi. Að þau þurfi bara að þekkja mörk og samþykki, þurfi að kunna réttu orðin og þora að segja frá. Það skiptir sannarlega allt máli. En ábyrgðin má aldrei lenda þar. Barn á aldrei að standa eitt vörð um eigið öryggi. Ábyrgðin liggur hjá samfélaginu og okkur fullorðnu. Börn eiga ekki að þurfa að bjarga sér með réttu orðalagi, réttu viðbrögðunum eða nægilegu hugrekki til að segja frá, og bera svo afleiðingar þess að hafa ekki getað varið sig nægilega vel, út lífið. Árangursríkar forvarnir byggja fyrst og fremst á því að fullorðið fólk, stofnanir og kerfi búi yfir nauðsynlegri þekkingu til að sjá hættuna fyrr, taki mark á vísbendingum og bregðist við af festu og þekkingu. Þar liggur líka kjarni málsins. Forvarnir eru fyrst og fremst innviðir fullorðinna. Börn eiga að fá fræðslu um mörk, samþykki, réttindi sín og leiðir til að segja frá. Það skiptir máli. En börn eiga ekki að bera meginábyrgð á eigin vernd og öryggi. Ábyrgðin liggur hjá fullorðnu fólki og þeim kerfum sem eiga að halda utan um öryggi barna. Foreldrum og forsjáraðilum. Skólum og frístund. Íþróttafélögum. Heilbrigðisþjónustu. Barnavernd. Öll þessi kerfi þurfa að kunna að bregðast við áður en skaðinn verður. Öryggi barna verður einmitt til í slíkri menningu. Það verður til þegar ábyrgðin er skýr og viðbrögðin eru til staðar áður en brotið er gegn barni. Við getum hugsað um forvarnir gegn kynferðisofbeldi eins og brunavarnir í húsi. Við bíðum ekki eftir að allt standi í ljósum logum með að setja upp reykskynjara, fara yfir flóttaleiðir eða kenna fólki að bregðast við ef eldur kviknar. Við reynum líka að koma í veg fyrir eldsvoðann sjálfan. Við pössum rafmagn og opinn eld, fylgjum öryggisreglum og látum ekki eldhættur óáreittar. Við skiljum börn ekki eftir inni í logandi húsi. Það er ekki nóg að hringja bara á 112 og vona að það brenni ekki allt til kaldra kola áður en slökkviliðið mætir. Það sama á við um kynferðisofbeldi gegn börnum. Það er ekki nóg að vita hvað á að gera þegar barn segir frá. Samfélagið þarf líka að draga markvisst úr þeim aðstæðum þar sem ofbeldi þrífst. Tilkynningum um ofbeldi gegn börnum og meðal barna hefur fjölgað og samkvæmt gögnum lögreglunnar fjölgaði tilkynntum kynferðisbrotum gegn börnum úr 124 málum árið 2024 í 150 árið 2025. En fjölgun tilkynninga getur hvort heldur sem er þýtt að fleiri brot séu að koma upp á yfirborðið, að fleiri börn séu að segja frá, eða að fleiri fullorðin tilkynni og að þekking á ofbeldi sé að aukast. Það þarf ekki að þýða að forvarnir hafi brugðist. Það getur þýtt að fleiri mál séu loks að koma í ljós og að fleiri börn fái tækifæri til að segja frá. Markmiðið er alltaf það sama, við viljum að tilkynningum fjölgi en að brotunum sjálfum fækki. Fleiri tilkynningar og færri brot. Þetta getur þýtt ýmislegt í framkvæmd. Því meira sem við tölum um ofbeldi gegn börnum, því betur sem við þekkjum merkin og því skýrar sem við bregðumst við, þeim mun minna svigrúm gefum við gerendum, eða mögulegum gerendum, til að brjóta gegn börnum. Ofbeldi þrífst best í þögn, óvissu og ákveðnu ábyrgðarleysi fullorðinna. Þegar fullorðið fólk sér það sem þarf að sjá og kann að bregðast við og börn vita að þeim verður trúað, verður erfiðara að fremja og fela brot, auðveldara að stöðva þau og líklegra að þau komi upp á yfirborðið. Öflugustu forvarnirnar felast í því að við sem erum fullorðin skiljum hlutverk okkar og tökum það alvarlega. Ef við ætlum að taka ofbeldi alvarlega þurfum við líka að taka alvarlega ábyrgðina á því að grípa inn í, stöðva það og byggja upp raunverulegt öryggisnet í kringum börn. Þess vegna skiptir #ÉGLOFA máli. Herferð Barnaheilla er bein áskorun til okkar allra um að taka ábyrgð á forvörnum gegn kynferðisofbeldi. Hún minnir á að forvarnir byrja ekki hjá börnunum sjálfum heldur hjá okkur fullorðna fólkinu. Börn verða öruggari þegar við lofum að líta ekki undan. Þegar við lofum að hlusta, fræðast og bregðast við. Ég lofa að berjast alltaf fyrir öryggi allra barna. Ég lofa að kynna mér rauðu flöggin, að þekkja viðbrögðin og taka börn alvarlega. Ég lofa að hlusta án þess að gera kröfu um fullkomna frásögn, að senda skýr skilaboð um að börn fái stuðning ef þau segja frá og að koma ábendingum í réttan farveg. Ég lofa. Hverju lofar þú? Höfundur er forvarnafulltrúi hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar