Vonsvikinn Raya ræddi við Hjörvar Valur Páll Eiríksson skrifar 20. apríl 2026 11:01 David Raya ræddi við Hjörvar Hafliðason eftir leik Arsenal við Manchester City. Mynd/Vísir David Raya, markvörður Arsenal, ræddi við Hjörvar Hafliðason eftir svekkjandi 2-1 tap toppliðsins fyrir Manchester City á Etihad-vellinum í gær. Raya segir nóg eftir af tímabilinu og fleiri tækifæri bíði Arsenal-liðsins.
Leik gærdagsins var stillt upp af mörgum sem hálfgerðum úrslitaleik um enska meistaratitilinn. Sigur City þýðir að liðið er með 67 stig í öðru sæti, þremur á eftir Arsenal. Vinni City leik sem liðið á inni við Burnley á miðvikudaginn fer liðið upp fyrir Arsenal á markatölu. Klippa: Vonsvikinn Raya ræddi við Hjörvar Hjörvar Hafliðason var fulltrúi Sýnar á leiknum í Manchester og spurði Raya hvort titilbaráttan væri ekki á lífi þrátt fyrir tap Skyttanna. „Við eigum enn fjölda leikja eftir. Við höfum fimm tækifæri. Í dag töpuðum við einu tækifæri en við einblínum á sjálfa okkur. Mér fannst við spila mjög vel og við höldum áfram,“ segir Raya. Raya segir þá mikilvægt fyrir Arsenal að fá hvíld frá leikjum í vikunni eftir Meistaradeildarleiki undanfarinna vikna. Næsti leikur liðsins er ekki fyrr en á laugardag þegar Newcastle heimsækir Emirates-völlinn. „Ég held það muni reynast mikilvægt. Þetta er í fyrsta sinn um hríð sem við spilum ekki í miðri viku. Við höfum spilað marga leiki svo það verður mikilvægt að halda fótunum ferskum fyrir næsta laugardag,“ segir Raya. Hjörvar spurði Raya þá hvort liðsfélagi hans Gabriel Magalhaes hafi verið heppinn að fjúka ekki af velli eftir samskipti við Erling Haaland þar sem þeir fóru haus í haus og Gabriel ýtti enninu að andliti Norðmannsins. „Ég hef ekki séð atvikið, svo ég get ekkert sagt um það.“
Arsenal FC Enski boltinn Manchester City Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Sjá meira