Sjálfstæðisflokkur langstærstur í Bestu deild kvenna Valur Páll Eiríksson skrifar 21. apríl 2026 12:54 Sjálfstæðisflokkurinn fær 39 prósent fylgi á meðal leikmanna Bestu deildar kvenna sem svöruðu leikmannakönnun. Samfylking er næst á eftir með minna en helming þess fylgis. Vísir/Samsett Sjálfstæðisflokkur fær lang flest atkvæði í komandi sveitarstjórnarkosningum á meðal leikmanna í Bestu deild kvenna ef marka má leikmannakönnun ÍTF á meðal leikmanna.
Líkt og fyrir spá í Bestu deild karla á dögunum voru leikmenn í kvennadeildinni spurðir um pólitíkina. 65 prósent leikmanna í Bestu deild kvenna eru andvígir inngöngu í Evrópusambandið en 35 prósent styðja inngönguna. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar karlamegin voru 76 prósent andvígir. 65 prósent leikmanna Bestu deildar kvenna eru andvígir inngöngu í Evrópusambandið.ÍTF Aðspurðar um komandi sveitarstjórnarkosningar kveðast 39 prósent leikmanna hyggjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Næst á eftir kemur Samfylking með 18 prósent en samanlagt fá stjórnarflokkarnir þrír á Alþingi 33 prósent. Viðreisn fær 13 prósent, Miðflokkur átta prósent, Framsókn sex og Flokkur fólksins tvö prósent. 13 prósent segjast kjósa annan flokk eða neita að taka afstöðu. Sjálfstæðisflokkurinn fær besta kosningu í komandi sveitarstjórnarkosningum á meðal leikmanna í Bestu deild kvenna.ÍTF Agla María Albertsdóttir úr Breiðabliki er talin verða besti leikmaður deildarinnar í sumar en Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir var aðeins einu atkvæði á eftir henni í öðru sæti. Hrafnhildur Ása var þá talin verða markahæst í sumar. Elísa Viðarsdóttir er sögð mesti tuðarinn í deildinni, rétt á undan Emmu Steinsen úr Víkingi. Liðsfélagi Emmu, Bergdís Sveinsdóttir í liði Víkings er þá talin skemmtilegust innan og utan vallar. Óskar Smári, þjálfari Stjörnunnar, er sá þjálfari sem flestir leikmenn vilja starfa fyrir og talið er að Natasha Anasi, nýr leikmaður Grindavíkur/Njarðvíkur verði kaup tímabilsins. Niðurstaða leikmannakönnunar: Besti leikmaðurinn í sumar: Agla María Albertsdóttir (Breiðablik) Markahæst í sumar: Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (Breiðablik) Mesti tuðarinn: Elísa Viðarsdóttir (Breiðablik) Skemmtilegust innan vallar og utan: Bergdís Sveinsdóttir (Víkingur) Bestu kaupin: Natasha Anasi (Grindavík/Njarðvík) Hvaða annan þjálfara vilt þú: Óskar Smári Haraldsson (Stjarnan) Hvaða landsliðskonu viltu í þitt lið: Glódís Perla Viggósdóttir
Besta deild kvenna Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Íslenski boltinn Gylfi valinn besti leikmaður ársins Íslenski boltinn Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Dagskráin: Lokaumferð Bestu með Doc Zone og Messan í einum pakka Sport Fleiri fréttir Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Matthías í stað Viktors við hlið Sölva „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“