Innlent

Gæslu­varð­hald fram­lengt yfir þremur í Dettifossmálinu

Birgir Olgeirsson skrifar
Gæsluvarðhald yfir einum sakborninganna var framlengt um tvær vikur en um eina viku hjá hinum tveimur. 
Gæsluvarðhald yfir einum sakborninganna var framlengt um tvær vikur en um eina viku hjá hinum tveimur.  Vísir/Vilhelm

Gæsluvarðhald yfir þremur sakborningum í rannsókn lögreglu á innflutningi á fjórtán lítrum af amfetamínbasa með Dettifossi, gámaflutningaskipi Eimskips, hefur verið framlengt. Einn þeirra sætir varðhaldi í tvær vikur til viðbótar en hinir tveir, sem eru starfsmenn Eimskips, í eina viku hvor.

Mennirnir voru handteknir þegar lögregla og tollgæsla réðust í aðgerðir vegna gruns um fíkniefnasmygl með gámaflutningaskipinu, en alls voru sex handteknir í málinu. Þrír voru síðar látnir lausir.

Lögregla hefur meðal annars ráðist í húsleit vegna rannsóknar málsins og lagt hald muni. 

Lögreglan greindi frá því í samtali við fréttastofu starfsmennirnir tveir sem eru í haldi hefðu ekki áður komið við sögu lögreglu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×