Atvinnulíf

Ástar­saga: Mark­miðið að allir verði ást­fangnir af LOVE

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Kári Halldórsson, Markús Bjarnason og Kristján Freyr Einarsson, stofnendur Love Synthesizer eiga það allir sameiginlegt að elska tónlist. FIRST LOVE er nýtt hljóðfæri í heiminum. Ekki enn ein hugbúnaðarlausnin til að skapa tónlist, heldur alvöru hljóðfæri sem þeir vilja helst að allir sem elski tónlist verði ástfangnir af.
Kári Halldórsson, Markús Bjarnason og Kristján Freyr Einarsson, stofnendur Love Synthesizer eiga það allir sameiginlegt að elska tónlist. FIRST LOVE er nýtt hljóðfæri í heiminum. Ekki enn ein hugbúnaðarlausnin til að skapa tónlist, heldur alvöru hljóðfæri sem þeir vilja helst að allir sem elski tónlist verði ástfangnir af. Vísir/Vilhelm

Ástríðan skín úr augunum. Eldur brennur þegar talað er. Í raun er ekki hægt annað en að smitast af gleðinni. Eldmóðnum.

Love is in the air og allt það…

Þrír karlmenn. Hver öðrum áhugasamari um að skýra út allt sem við þurfum að vita um LOVE.

En hvað er LOVE eiginlega?

Erum við að tala um eitthvað eins og segir í laginu What is Love?

I want no other, no other lover

eða

When we are together, I need you forever

Innovation Week Iceland verður haldin í næstu viku, þar sem nýsköpun er til umræðu og kynnt með alls kyns viðburðum, fyrirlestrum, kynningum og fleiru frá morgni til kvölds dagana 27.–30. apríl, sjá dagskrá HÉR.

Í tilefni Innovation Week fjallar Atvinnulífið um nýsköpun í dag og á morgun.

Stærsta hljóðfæra- og tónlistarráðstefna Evrópu ár hvert heitir SuperBooth, en athyglin sem frumgerð FIRST LOVE fékk þar, var í raun staðfesting á því að þetta nýja hljóðfæri væri eitthvað sem áhugi væri fyrir. Enda fékk það viðurkenningu sem besta nýjungin í bransanum.

Fikt og grúsk

Til að halda ykkur ekki í spennu lengur er svarið við fyrrgreindri spurningu þetta:

LOVE er nýtt hljóðfæri.

Sem heitir formlega FIRST LOVE og er fyrir alvöru hljóðfæri sem skapar tónlist. Ekki hugbúnaðarlausn, þótt vissulega sé hugbúnaður í hljóðfærinu.

FIRST LOVE-hljóðfærið er einstakt í heiminum. Og mun frá og með næsta hausti fara í hljóðfæraverslanir víða erlendis. Þar á meðal í Bandaríkjunum, jafn stór og sá markaður er.

„Fyrsta útibúið okkar erlendis verður í Tókýó,“ segir Markús Bjarnason og hlær. Meira um það síðar en til að byrja á byrjuninni er stysta útgáfan af sögunni af LOVE þessi:

Kári Halldórsson, tölvunarfræðingur og fyrrum kennari í HR hafði um tíma verið að prófa sig áfram með hljóð og tónlist og sköpun hljóðs.

„Þó þannig að ég var ekkert að spá í að búa eitthvað formlega til eða stofna fyrirtæki,“ segir Kári og brosir.

Sem breyttist þó því árið 2022 höfðu þó nokkrir vinir og félagar Kára hvatt hann til að fara að gera meira úr því sem hann þá þegar var búinn að búa til.

„Nýsköpun á einhverju sem hvergi í heiminum hafði verið búið til áður en ég upplifði samt bara eins og fikt,“ segir Kári og brosir enn.

Úr varð að sækja um sprotastyrk til Tækniþróunarsjóðs. Sem raungerðist og þá má segja að boltinn hafi farið að rúlla; fyrirtækið LOVE Synthesizers varð til þar sem meðstofnendur eru Kári, fyrrnefndur Markús og Kristján Freyr Einarsson. Allir sérhæfðir á sínu sviði en eiga eitt sameiginlegt: Að elska tónlist.

Það sama á við restina af hópnum. Sem nú telur sjö til átta manns að jafnaði, enda hafa styrkirnir orðið fleiri og ljóst að áhugi er fyrir hendi á þessari nýstárlegu vöru sem hljóðfærið FIRST LOVE er.

„Það er líka mikilvægt að það komi fram að það skipti sköpum fyrir alla vöruþróun og að þetta hljóðfæri er fyrir alvöru orðið til og komið í framleiðslu, að við höfum fengið nokkra styrki frá Tækniþróunarsjóði,“ segir Kári og bæði Markús og Kristján kinka kolli.

Svona lítur FIRST LOVE hljóðfærið út en með því er hægt að skapa tónlist og leika sér með hljóð. Félagarnir segja fólk sem elskar tónlist eiga það sameiginlegt að elska hljóðfærin sín líka. Fyrir þá sem tónlistarmenn sé mikilvægt að skapa tónlist með hljóðfæri, ekki enn einu appinu.Vísir/Vilhelm

Þýðingarmikil verðlaun

FIRST LOVE hljóðfærið skilgreinist sem rafhljóðfæri. Sem félagarnir segja vera fyrir alla sem elska tónlist. 

Í raun sé markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE.

Með FIRST LOVE er líka hægt að gera ótrúlegustu hluti. Til að skapa tónlist og leika sér með hljóð. Hljóðfærið er með snertiskjá og viðmóti sem er bæði auðvelt í notkun og spennandi að nýta og auðheyrt á tali félaganna að möguleikarnir eru margvíslegir.

„Þetta er líka svo gullfallegt hljóðfæri,“ segir Markús og handleikur gripinn með aðdáun í augum. Svona eins og tónlistarmenn gera að öllu jöfnu með sín eigin hljóðfæri.

LOVE Synthesizers og FIRST LOVE eru nú þegar skráð vörumerki hjá Hugverkastofunni og svolítið skemmtileg saga frá því hvernig nafnið festist við hljóðfærið. Því þótt nafnið á hljóðfærið væri úthugsað frá upphafi og tengt þeirri hugsun að sameina kærleika og frið í gegnum samspil og tónlist og því hvernig ást fólks á tónlist og hljóðfærum er sameiningarkraftur, veltu félagarnir fyrir sér í upphafi hvort þetta enska orð ástarinnar yrði samþykkt af öllum.

Við fórum með frumgerðina okkar á SuperBooth-hljóðfærasýninguna árið 2024, vorum þar með bás og flennistórar bleikar merkingar þar sem LOVE stóð skýrum stöfum. 

Veltum fyrir okkur hvort fólk myndi gera athugasemd við nafnið, en enginn gerði athugasemd. Fyrst og fremst var fólk forvitið og áhugasamt að sjá og heyra um hljóðfærið.“

Enda SuperBooth svo sannarlega rétti staðurinn til að vera á, því það er stærsta hljóðfæra- og tónlistarráðstefna Evrópu.

Félagarnir segja frumgerðina hafa verið hálfhallærislega. Svona eftir á að hyggja. Og í samanburði við hljóðfærið eins og það lítur út í dag.

Sem gerir söguna þá bara krúttlega.

Enda meira sem féll til í þessari ferð.

Því LOVE Synthesizers hlaut viðurkenningu sem besta nýjungin í bransanum og það einfaldlega verður að teljast mjög stór áfangi.

Enda segir Kári:

Þetta eiginlega gerði það að verkum að við fengum staðfestingu á því að við værum að gera eitthvað rétt. Skapa eitthvað sem áhugi væri fyrir.“

Það sem byrjaði sem fikt og grúsk hjá Kára er orðið að alvöru físísku hljóðfæri sem hægt er að tengja við mörg önnur hljóðfæri líka og fleira. Möguleikarnir eru margvíslegir og enn er verið að þróa ný tækifæri og fleira tengt FIRST LOVE.

Hljóðfæri framtíðarinnar

Kári, Kristján og Markús segja hljóðfærið eiga gífurlega mikla möguleika. Gæti jafnvel nýst mjög vel til að kynna börnum snemma fyrir skapandi heimi tónlistar, hljóðfærið sé í raun það auðvelt í notkun.

Fyrst og fremst sé   þ ó sá hópur sem einfaldlega elskar tónlist og að skapa hljóð og tónlist.

En er ekki komið fullt af öppum í símanum og hugbúnaðarlausnum sem hægt er að nota?

„Jú,“ svara félagarnir en það er alveg ljóst að samanburðurinn í þeirra huga er langt frá því að vera mögulegur.

„App eða hugbúnaðarlausn myndi aldrei selja mér svona vöru. Ég myndi ekki nenna enn einni hugbúnaðarlausninni,“ segir Kári og félagarnir kinka kolli.

Markús útskýrir hvernig tónlistarfólk og fólk almennt hafi áhuga á að eiga hljóðfæri og handleika það. Hljóðfærið sé þannig hluti af upplifun og skynjun tónlistarsköpunar.

„Fólk í tónlist talar um hljóðfærið sitt og þykir vænt um hljóðfærið sitt,“ segir Markús, sem spilaði á synthesizer í hljómsveitinni Skátar, en spilar aðallega þessa dagana á gítar og semur tónlist undir nafninu Markús & The Diversion Sessions. Fyrsta hljómsveitin var þó Sofandi þar sem Kristján Freyr spilaði einmitt á trommurnar.

Kristján hefur verið trommari í fyrrnefndum hljómsveitum og Conferter-Synthesizer, Hljómsveitt, trommur og nú síðast í nýstofnuðu tríói sem kallast Rant Viceroy.

Kári spilar á rafmagnsgítar. Hann er í hljómsveitinni Retrön sem gaf út plötuna Swordplay and Guitarslay 2009 þar sem blandað var saman rokktónlist og rafhljóðfærum með ævintýra- og tölvuleikjaáhrifum. Hluti rafhljóðfæranna sem hljómsveitin notaði voru forrituð af Kára.

Kári, Markús og Kristján segja FIRST LOVE hljóðfæri sem hæglega geti kynnt fyrir börnum skapandi heim tónlistar. Hljóðfærið sé með snertiskjá og viðmóti sem er auðvelt í notkun. FIRST LOVE segja þeir hljóðfæri framtíðarinnar.

Mörgum kemur það eflaust á óvart að heyra að gervigreindin sé ekki nýtt til að þróa FIRST LOVE hljóðfærið eða þá möguleika sem það býr yfir. Staðreyndin sé samt sú að það sé einmitt hluti af því hvers vegna það er fyrir alvöru hægt að segja að FIRAT LOVE-hljóðfærið sé nýtt hljóðfæri í heiminum.

Hljóðfærið er hægt að nota eitt og sér, tengja við önnur hljóðfæri og svo framvegis. Félagarnir telja því líklegt að FIRST LOVE eigi erindi til margra í tónlistarheiminum. Muni nýtast sem sjálfstætt hljóðfæri og með öðru.

„Við höfum samt alltaf lagt áherslu á að það yrði aðgengilegt fyrir almenning,“ segja þeir og vísa þar til markmiðs um að verð FIRST LOVE séu viðráðanleg.

FIRST LOVE er í framleiðsluferli á Filippseyjum og fer í verslanir erlendis og hérlendis í haust. Forsala á hljóðfærinu mun þó opnast á vefsíðu Love Synthesizers í vor en hljóðfærið verður kynnt á viðburði Innovation Week Iceland í Grósku næsta mánudag. Viðburðurinn hefst klukkan 16.40.Vísir/Vilhelm

Hönnunin í kringum LOVE vekur eftirtekt. Enda skærbleikur liturinn áberandi. Þróunar- og hönnunarvinna hefur verið mikil teymisvinna frá upphafi, en verkaskiptingin er þó skýr: Kristján leiðir hönnunarvinnuna, Markús sér um viðburði og markaðsmálin og Kári er yfir hugbúnaðarþróuninni.

„Draumurinn er sá að geta haldið áfram að skapa og finna upp hljóðfæri fyrir nútímann og framtíðina,“ segir Kári og viðurkennir að enn elski hann að fikta og grúska.

Sem stendur er LOVE í framleiðsluferli á Filippseyjum en þótt sala hefjist erlendis og hérlendis næsta haust opnast fyrir forsölu í gegnum vefsíðu félagsins fljótlega í vor.

Í tilefni Innovation Week verður hljóðfærið líka kynnt á viðburði í Grósku síðdegis 28. apríl, þar sem LOVE Synthesizers verður með bás í samstarfi við Rannís og Tækniþróunarsjóð. Þar verða einnig fyrirtækin Genki, Cycle Instruments, Atomic Analog og Inorganic Instruments en það sem þessi fyrirtæki eiga sameiginlegt er að þau eru öll íslenskir framleiðendur rafhljóðfæra eða tengds vélbúnaðar og hugbúnaðar.

Um framtíðina segir Kári:

Einn daginn komumst við út úr þessu sprotastressi sem fylgir upphafi nýsköpunar. En við sjáum fyrir okkur að gera meira en að gefa út nýjar útgáfur af FIRST LOVE hljóðfærinu. 

Ef allt gengur að óskum munum við halda áfram að skapa eitthvað nýtt, sem við í raun getum ekki sagt þér frá núna því okkur hefur einfaldlega ekki dottið það í hug enn!“


Tengdar fréttir

„Hvers vegna þarf ég að vera bara verkfræðingur eða bara smiður?“

Það hljómar kannski sem algjör steypa að blanda saman verkfræði, smíði og jazztónlist. En það er nú samt sem áður raunin hjá Magnúsi Rannver Rafnssyni, verkfræðingi, húsasmiði og tónlistarmanni, sem fyrir nokkru gaf út sína aðra plötu á streymisveitunni Spotify.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×