Viðskipti innlent

Birta Karen ráðin til Við­skipta­ráðs

Atli Ísleifsson skrifar
Birta Karen Tryggvadóttir.
Birta Karen Tryggvadóttir. VI

Birta Karen Tryggvadóttir hefur verið ráðin hagfræðingur á málefnasviði Viðskiptaráðs. 

Frá þessu segir í tilkynningu. Þar kemur fram að Birta Karen sé með B.S.-próf í hagfræði frá Háskóla Íslands og að ljúka meistaranámi í hagfræði frá Erasmus School of Economics í Hollandi.

„Birta Karen starfaði áður sem hagfræðingur hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi í þrjú ár og kom þar að greiningarvinnu um íslenskan sjávarútveg. Þar áður starfaði hún sem blaðamaður á Viðskiptablaðinu og hjá Íslandsbanka sem sumarstarfsmaður.

Starf Birtu Karenar hjá Viðskiptaráði mun fyrst og fremst snúa að málefnastarfi og útgáfu ráðsins, svo sem hagfræðilegum greiningum, skýrslugerð og öðrum skrifum auk þátttöku í öðrum verkefnum,“ segir í tilkynningunni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×