Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Ágúst Orri Arnarson skrifar 22. apríl 2026 12:00 Marc Cucurella hefði betur haldið sér saman þegar hann settist í hárgreiðslustólinn. Darren Walsh/Chelsea FC via Getty Images Hinn hárprúði Marc Cucurella virðist hafa talað af sér þegar hann lét snyrta kollinn fyrir 3-0 tap Chelsea gegn Brighton í gærkvöld.
Þó ótrúlegt megi virðast þá fór Cucurella í klippingu í gær. Hárgreiðslumaðurinn birti síðan færslu á samfélagsmiðlinum X nokkrum klukkutímum fyrir leik, þar sem hann greindi frá því að Cole Palmer og Joao Pedro yrðu ekki með Chelsea í kvöld. „Palmer og Joao Pedro eru báðir meiddir. Einkafregnir bara fyrir ykkur,“ skrifaði hárgreiðslumaðurinn en færslunni hefur nú verið eytt af X. Þetta reyndist hárrétt hjá honum. Cole Palmer og Joao Pedro tóku ekki þátt í leiknum, sem Chelsea tapaði 3-0. Þetta var fimmta tap liðsins í röð í ensku úrvalsdeildinni án þess að skora mark en það hafði ekki gerst síðan árið 1912. Mögulega hafa lærisveinar Fabian Hurzeler hjá Brighton komist að leikplaninu í gegnum hársnyrtinn. Þeir völtuðu allavega yfir andlaust Chelsea lið í þessum leik og greinilegt er að Liam Rosenior glímir við fleiri vandamál en bara slaka spilamennsku liðsins ef svona upplýsingaleki er til staðar hjá félaginu. „Ég hef oft komið leikmönnum mínum til varna en ég get ekki varið þessa frammistöðu,“ sagði Rosenior eftir leikinn í gær og bræði hans hefur væntanlega ekki minnkað þegar hann heyrði af hársnyrti Cucurella. „Ég er dofinn af reiði. Eitthvað verður að breytast hérna, strax. Þeir sýndu engan vott af fagmennsku. Viðhorfið okkar til leiksins var slæmt. Þetta var algjörlega, algjörlega óásættanlegt,“ sagði Rosenior einnig eftir leik.
Chelsea FC Enski boltinn Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport DocZone snýr aftur Enski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjá meira