Talar stöðugt við Kristófer Acox: „Hræddur við að verjast mér“ Sindri Sverrisson skrifar 23. apríl 2026 13:48 DeAndre Kane átti ríkan þátt í sætum sigri Grindavíkur í gærkvöld. Sýn Sport DeAndre Kane talaði stöðugt við Kristófer Acox og skaut á hann í fyrsta leik undanúrslitaeinvígis Grindavíkur og Vals í gærkvöld, í Bónus-deildinni í körfubolta, og fagnaði sætum sigri í lokin.
Kane var valinn Just Wingin' it maður leiksins og mætti í settið hjá Stefáni Árna Pálssyni og félögum í Körfuboltakvöldi. Þar fóru þeir yfir víðan völl eins og sjá má í spilaranum hér að neðan. Klippa: DeAndre Kane í settinu eftir sigur á Val Stefán spurði Kane meðal annars út í stöðug samskipti hans við Kristófer Acox en þeir hafa ítrekað mæst síðan Kane kom í deildina fyrir þremur árum, til að mynda í úrslitaeinvíginu á fyrsta tímabili Bandaríkjamannsins með Grindavík. „Hann er minn maður. Ég ber mikla virðingu fyrir honum,“ sagði Kane um Kristófer. „Frá því að ég kom hingað fyrst höfum við verið að berjast í úrslitakeppninni. Þetta er þriðja árið í röð þar sem við mætum Val í úrslitakeppninni og það hefur verið gott að berjast við hann. Ég sagði honum að hann yrði að spila einhverja vörn. Ég veit ekki hvort leikplanið þeirra er að láta mig skjóta en ég get skotið. Þeir verða að spila vörn,“ sagði Kane. En kom það honum þá ekki á óvart hve mikið pláss hann fékk? „Jú. Ég klikkaði á nokkrum í fyrri hálfleik en skotin litu öll vel út. Þjálfarinn sagði mér að skjóta áfram af sjálfstrausti og setja þau niður, ég náði að gera það í seinni hálfleik og koma okkur yfir,“ sagði Kane sem hefur alltaf ætlað sér að færa Grindvíkingum langþráðan Íslandsmeistaratitil. „Ég vil bara vinna,“ sagði Kane. „Ég held að það sé ekki einn maður í deildinni sem getur dekkað mig. Ég sagði það við Acox, að hann væri hræddur við að verjast mér,“ sagði Kane en viðtalið við hann má sjá í heild hér að ofan.
Bónus-deild karla Valur UMF Grindavík Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Fleiri fréttir Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Sjá meira