Körfubolti

Áttu vart orð yfir til­þrifum í Garða­bæ: „Þetta var rosa­legt“

Aron Guðmundsson skrifar
Leikur tvö í einvígi Stjörnunnar og Tindastóls er nú í gangi
Leikur tvö í einvígi Stjörnunnar og Tindastóls er nú í gangi Vísir/Samsett

Lýsendur Sýnar Sport á leik tvö í einvígi Stjörnunnar og Tindastóls áttu vart orð yfir tilþrifum Luka Gasic sem varði tilraun Taiwo Badmus, leikmanns Tindastóls til þess að troða yfir hann.

Nú stendur yfir leikur tvö í undanúrslitaeinvígi liðanna í Garðabænum þar sem að Tindastóll reynir að hefna fyrir tap í fyrsta leik liðanna í Síkinu á Sauðárkróki á dögunum. 

Klippa: „Ég hélt þetta væri ekki hægt“

Stólarnir hafa verið skrefi á undan í leiknum í fyrri hálfleik þegar að þetta er skrifað og í stöðunni 25-33 Tindastól í vil ætlaði Taiwo Badmus, leikmaður liðsins gjörsamlega að brjóta Garðbæinga niður með því að troða boltanum yfir Luka Gasic, leikmanns Stjörnunnar.

Badmus hefur í þessari stöðu, með sína hæð og stökkkraft yfirleitt ekki átt í neinum vandræðum með svona troðslur í gegnum tíðina en hann fékk alvöru vörn frá Gasic á móti sér.

Gasic varði skot Badmusar og lýsendur leiksins, Heiðar Snær og Jóhann Árni áttu vart orð yfir tilþrifunum.

„Þvílík vörn hjá Luka Gasic,“ sagði Heiðar Snær. „Hann mætti honum bara á efstu hæð og blokkaði hann.

„Þetta var rosalegt,“ bætti Jóhann við. 

„Ég hélt þetta væri ekki hægt á móti Badmus,“ sagði Heiðar þá. 

„Ekki í íslensku deildinni,“ bætti Jóhann þá við. „Ég hef ekki séð þetta áður. Að Badmus sé mætt í þessari hæð.“

Tilþrifin má sjá hér ofar í fréttinni. Leikur liðanna er nú í gangi í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland. Fylgjast má með textalýsingu frá honum í frétt hér fyrir neðan. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×