Handbolti

Stór­sigur Stjörnunnar knúði fram odda­leik

Aron Guðmundsson skrifar
Frá leik Stjörnunnar fyrr á tímabilinu. Hér má sjá Natösju Hammer sem var öflug í markaskorun fyrir Stjörnuna í leik dagsins.
Frá leik Stjörnunnar fyrr á tímabilinu. Hér má sjá Natösju Hammer sem var öflug í markaskorun fyrir Stjörnuna í leik dagsins. Vísir/Vilhelm

Odda­leik þarf til að skera úr um hvort Stjarnan eða Grótta spili í Olís deild kvenna í hand­bolta á næsta tíma­bili. Tólf marka stór­sigur Stjörnunnar í dag, 36-24, í fjórða leik liðanna í úr­slita­ein­víginu sér til þess.

Lið Gróttu leiddi ein­vígið fyrir leik dagsins 2-1 og vissu leik­menn liðsins því að með sigri yrði sæti í Olís deildinni á næsta tíma­bili í höfn. Stjörnu­konur mættu með bakið upp við vegg og þurftu sigur til að knýja fram odda­leik.

Skemmst er frá því að segja að lið Stjörnunnar lék á alls oddi í leik dagsins og vann öruggan tólf marka sigur, 36-24.

Þær Aníta Björk Val­geirs­dóttir, Vigdís Arna Hjartardóttir og Natasja Hammer voru marka­hæstar í liði Stjörnunnar með sex mörk hvor og heilt yfir var marka­skorun Stjörnu­liðsins nokkuð dreifð og margar að skila flottu fram­lagi.

Sam­kvæmt leikja­plani HSÍ mun odda­leikur liðanna fara fram á mið­viku­daginn næsk­tomandi í Heklu höllinni í Garða­bæ. Þar mætast Stjarnan og Grótta í hreinum úr­slita­leik um sæti í Olís deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×