Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 27. apríl 2026 12:44 Þeir sem starfa á skrifstofu getur nýtt gervigreind í flest verkefni. Getty Allt bendir til þess að gervigreind muni hafa áhrif á flest störf á íslenskum vinnumarkaði samkvæmt nýrri skýrslu Almannaróms. Talið er að störf skrifstofufólks verði helst undir auk stjórnendastarfa. Hins vegar er ekki talið að óvæntar sviptingar komi upp vegna þessa.
Í nýrri skýrslu Almannaróms um stöðu gervigreindarinnar eru áhrif hennar á störf og vinnumarkað sérstaklega útlistuð. Rúmlega sjö þúsund einstaklingar á íslenskum vinnumarkaði sinna störfum þar sem meira en fimmtungur verkefna er nú þegar unninn af gervigreind. Samkvæmt greiningu gervigreindarfyrirtækisins Anthropic eru þetta störf sem gætu verið unnin að öllu leyti af gervigreind. Tekið er fram í skýrslu Almannaróms að forsenda rannsóknarinnar sé að notkun gervigreindar á Íslandi og í Bandaríkjunum sé sú sama, sem er ólíklegt að sé í raun. Hins vegar er talið að notkun Íslendinga muni þróast í sömu átt og notkun vestanhafs fyrr en síðar. Greining Anthropic gerir ráð fyrir því að hægt sé að nota gervigreind í að sinna níutíu prósent verkefna skrifstofustarfsfólks en þegar sér gervigreindin um þriðjung verkefnanna. Sömu sögu má segja um störf stjórnenda og embættismanna. Þeir nýta nú þegar gervigreindina í sextán prósent verkefna en gætu nýtt hana í rúm níutíu prósent verkefna. Á efri hluta myndar má sjá hvar notkunar gervigreindar gætir á vinnumarkaði þegar horft er á heildina. Flestir eru í störfum þar sem notkunin er „miðlungs“ og fæstir í störfum þar sem notkunin er „mikil“. Í töflunni að neðan má sjá fjölda starfsfólks eftir starfsstéttum (skv. flokkun Hagstofu), þar sem sýnt er hlutfall bæði fræðilega mögulegrar notkunar gervigreindar og raunverulegrar notkunar.Almannarómur Sá hópur sem mun finna hvað minnst fyrir gervigreindina er ósérhæft starfsfólk en það eigi að geta nýtt gervigreindina í 3,9 prósent verkefna. Þar á undan er véla- og vélgæslufólk sem gæti látið gervigreindina sjá um tæp sextán prósent. Konur eru líklegri til að sinna störfum þar sem gervigreindin getur séð um meirihluta verkefna. Háskólamenntaðir munu finna töluvert meira fyrir áhrifum gervigreindarinnar. Þrátt fyrir að talið sé að gervigreindin muni hafa áhrif á flest störf er ólíklegt að upp komi óvæntar sviptingar eða fjöldaatvinnuleysi. Líklegt er að þróunin sjáist nú þegar í eðli starfanna sem gervigreindin kann að hafa áhrif á. Langt frá því að fullnýta tæknina Gervigreindarmállíkön á við ChatGPT og Claude geta nú leyst verkefni sem tækju starfsmann nokkrar klukkustundir að leysa og er talið að gervigreindin geti fljótlega leyst verkefni sem annars tæki fólk fleiri mánuði að vinna á mun styttri tíma. Almennt starfsfólk er hins vegar langt frá því að fullnýta gervigreindina, sem getur til að mynda verið vegna takmarkanna laga- og regluumhverfis og staðreyndarinnar að tækninni hefur fleygt fram hraðar en færni og þekkingu fólks. „Það er ótvírætt að eftir því sem tæknin verður betri, notkun útbreiddari og innleiðing dýpri í verkferla fyrirtækja þá mun rauða svæðið á myndinni, svæði hinnar raunverulegu notkunar, smám saman þekja stærri hluta bláa svæðisins, svæði hinnar fræðilega mögulegu notkunar. Þessi svæði munu þó seint renna saman í eitt,“ segir í greiningunni. Greining Anthropic ber saman fræðilega mögulega notkun gervigreindar (bláa svæðið á myndinni) og raunverulega notkun samkvæmt notkunartölum frá Anthropic sjálfum (rauða svæðið á myndinni).Almannarómur „Rétt er að ítreka hér að allt eru þetta vísbendingar um hvar gervigreind kann nú þegar að hafa áhrif eða er líkleg til að hafa áhrif í náinni framtíð. Þessi nálgun segir hins vegar í raun ekki með beinum hætti til um mögulegt atvinnuleysi, líklega þróun ráðninga eða áhrif á launaþróun. Slík áhrif munu velta á ákvörðunum fyrirtækja og stjórnvalda og þróun ólíkra atvinnugreina.“
Gervigreind Vinnumarkaður Stafræn þróun Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Sjá meira